Þögull barna­mála­ráð­herra

Fyrir sveitarfélögum liggur nú að taka afstöðu til samnings ríkisins um móttöku flóttafólks. Samningurinn er um margt ágætur en hann var lagður á borð sveitarfélaga án nokkurs samtals um hvað hann ætti að innihalda. Fyrirkomulagið hefur staðið aðeins í meirihlutanum í Garðabæ þrátt fyrir að nú búi um 130 flóttamenn í sveitarfélaginu. En nú er komið að því að Garðabær tekur skrefið og undirbýr undirritun og því fögnum við í Viðreisn svo sannarlega.

Það er eitt við samninginn sem ég hnýt sérstaklega um, ásamt fleiru sveitastjórnarfólki. Það það er skortur á stuðningi við börn í leik- og grunnskólum. Barna- og menntamálaráðherra virðist ekki hafa gert sér það í hugarlund að þessi stuðningur við væri sérstaklega mikilvægur. Það væri amk ekki mikilvægt að koma að málum hratt og örugglega. Í stað þess að tryggja strax sérstakan stuðning við börn sem hafa verið á flótta, leggur hann til tímabundin tilraunaverkefni fyrir sum sveitarfélög og athuganir, sem mun tefja fyrir þeim stuðningi sem börnin þurfa strax.

Skiljum börnin ekki eftir

Það er okkur öllum ljóst að ef það skiptir máli að hlúa vel að börnum þá skiptir það gríðarlega miklu máli að hlúa vel að aðlögun barna á flótta. Búa svo um að hvergi beri skugga á. Börn á flótta eru svo óendanlega varnarlaus og verða af svo dýrmætu og mikilvægu jafnvægi í uppvexti. Öryggi, húsaskjól og menntun er eitthvað sem okkur þykir mikilvægt að bjóða börnum upp á í okkar samfélagi.

Eitt er að koma fólki á flótta í skjól og veita nauðsynlega þjónustu og við erum öll sammála um mikilvægi þess. En það skýtur skökku við að þar séu börn undanskilin. Við vitum öll sem viljum vita að álagið í leik- og grunnskólum er mikið fyrir. Leikskólar glíma við hinn sígilda mönnunarvanda og grunnskólarnir eru sveltir af því fagfólki sem þarf til þess að mæta þeim fjölbreytileika sem tilheyrir skólakerfi sem ætlað er fyrir öll.

Ég velti þessu sérstaklega fyrir mér því barnamálaráðherra hefur haft svo hátt (er það ekki það sem menn segja þegar röddin er hækkuð?) um betri þjónustu við börn. Öll börn. Því finnst mér hljóð og mynd ekki fara saman. Það fer ekki saman ómurinn úr barnamálaráðuneytinu um að gera best fyrir öll börn, ópið sem berst frá skólasamfélaginu um að kerfið okkar sé að kikna undan álagi og kallið eftir stuðningi einmitt til þess að geta gert það allra besta fyrir öll börn. Líka flóttabörnin okkar sem barnamálaráðherra er þögull um.

Greinin birtist fyrst á Vísi 16 mars 2023