Hve­nær fór ríkis­stjórnin að treysta Banka­sýslunni aftur?

Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna í fjárlaganefnd segja nauðsynlegt að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur verði birtur. Það er sanngjörn krafa. Bryndís Haraldsdóttir segir að það þurfi auðvitað að birta allt í kringum þessa sölu. Það er rétt. Og ef það er ætlunin að að endurheimta traust þarf að birta allt, en ekki bara sumt. Það þarf að segja söguna alla en ekki bara að birta valda kafla.

Síðasta skoðanakönnun sýnir að ríkisstjórnin hefur misst mikið traust. Þingmenn sem vilja birta starfslokasamning Birnu ættu auðvitað að styðja að birta öll gögn og samskipti stjórnvalda í aðdraganda sölunnar. Þau ættu að styðja að kannað verði hvernig ráðherra sinnti leiðbeiningarskyldu sinni til Bankasýslunnar í aðdraganda sölunnar og eftirlitsskyldu sinni skv. lögum. Geta þeir hugsað sér að klára rannsókn á þeim þáttum Íslandsbankasölunnar sem út af standa? Þannig að allt um þessa sölu verði birt, líka þeir þættir sem sýna undirbúning og eftirlit ráðherra. Skoðanakönnun sýndi að 83% þjóðarinnar var óánægður með hvernig tókst til við söluna. Sú óánægja var löngu tilkomin áður en starfslokasamningur var gerður við bankastjórann.

Á hluthafafundi í Íslandsbanka í lok mánaðarins mætir Bankasýslan fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og almennings. Sama bankasýsla og enn heldur því fram að útboðið hafa verið það farsælasta í Íslandssögunni. Hörð gagnrýni Ríkisendurskoðanda á Bankasýsluna og 1,2 milljarða sekt Íslandsbanka vegna alvarlega brota virðist ekki enn hafa fært þeim skilning á málinu. Bankasýslan er umboðslaus eftir að sérstök fréttatilkynning formanna ríkisstjórnarflokkanna var send út um að leggja þyrfti stofnunina niður vegna þess hvernig bankasýslan sinnti sínum þætti í málinu. Forystumenn ríkisstjórnarinnar sögðust þá ekki treysta Bankasýslunni. Bara síðast í gær sagði viðskiptaraðherra að forsvarsmenn Bankasýslunnar hefðu orðið sér til skammar á fundi efnahagsnefndar. Enn virðast þeir ekki skilja að salan snerist ekki bara um verðið heldur um vinnubrögð.

Finnst þingmönnunum passandi að Bankasýslan fari þá með þetta mikla ábyrgðarhlutverk fyrir hönd almennings á hluthafafundinum? Mennirnir sem ekki skilja gagnrýnina á þá sjálfa? Menn sem verða sér til skammar að mati ríkisstjórnarinnar þegar þeir tala um söluna? Finnst þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna það passandi þrátt fyrir orð um að þeim sé ekki treystandi? Ríkisstjórnin þarf að svara hvað varð til þess að ríkisstjórnin fór að treysta Bankasýslunni aftur? Snýst það um nokkuð annað en að reyna að beina kastljósinu að hluthafafundinum og frá umræðum um rannsóknarnefnd?

Forsætisráðherra hefur með skapandi skýringu fundið út að fjármálaráðherra hafi axlað ábyrgð með því að biðja ríkisendurskoðanda að skrifa skýrslu. Er það ekki dálítið eins og að ábyrgð Birnu Einarsdóttur hefði bara verið sú að biðja endurskoðendur um að skrifa skýrslu um söluna?

Greinin birtist fyrst á Vísi 3. júlí 2023