Er ekki kominn tími á aðra nálgun?

Á Íslandi er viðvarandi verðbólga sem hefur gífurleg áhrif á daglegt líf allra kynslóða í landinu. Bakslag í hinsegin málum er orðið sýnilegra með hverjum deginum og fregnir af ofbeldi heyrast nær daglega. Upplýsingaóreiða og pólarísering virðist einkenna samfélagslega umræðu í frekari mæli og erfitt er að komast að sameiginlegri niðurstöðu í mikilvægum málaflokkum.

Ekkert svakalega eftirsóknarverð staða, er það nokkuð?

Þessi staða kemur hins vegar ekki svo mikið á óvart. Við höfum nefnilega haft sömu ríkisstjórnina við völd í nánast sex ár. Sex ár sem hafa einkennst af innbyrðis átökum um sjálfsköpuð vandamál, þar sem lítill sem enginn tími gefst til þess að bregðast við þeim fjölda áskoranna sem við stöndum frammi fyrir.

Á tímum sem þessum er mikilvægt að rödd þeirra sem tala fyrir nýjum lausnum og standa vörð um mannréttindi allra heyrist. Þeirra sem fagna fjölbreytileikanum og öllum þeim tækifærum sem í honum felst, og þeirra sem vilja að íslenskt samfélag einkennist af fjölbreyttum tækifærum, réttlæti og efnahagslegum stöðugleika.

Rödd þessara sjónarmiða á sér greiðan farveg í Viðreisn. Við viljum að á Íslandi ríki heilbrigð samkeppni, þar sem neytendur hafa raunverulegt valfrelsi í innkaupum sínum með aðgangi að fleiri mörkuðum og afnámi verndartolla, og fyllast því ekki af áhyggjum þegar þeir sjá verðið á matarkörfunni. Samfélag þar sem gjaldmiðillinn sveiflast ekki í sífellu og veldur óendanlegri óvissu, þar sem fasteignakaup eru ekki fjarlægur draumur, heldur raunverulegur valkostur. Samfélag þar sem jaðarhópar upplifa sig örugga og þurfa ekki að berjast ítrekað fyrir grundvallarmannréttindum. Samfélag þar sem er gott að búa, og þar sem fólk vill búa og byggja upp líf sitt.

Ég er tilbúin að sjá Ísland í þessu nýja ljósi, og hef því gefið kost á mér til forseta Uppreisnar – ungliðahreyfingar Viðreisnar. Uppreisn er öflug hreyfing sem hefur sýnt í orðum og verki að ungt fólk hefur rödd, og henni ber að taka eftir og hlusta á. Sést slíkt einna helst með nýrri nálgun Viðreisnar í umhverfismálum, sem var keyrð áfram af ungu fólki innan flokksins, og skilaði sér í því að Viðreisn fékk eina hæstu einkunn Sólarkvarðans árið 2021.

Við í Uppreisn höfnum íhaldssemi og sjáum tækifæri í því að hugsa hlutina upp á nýtt, vinna með öðrum að sameiginlegum markmiðum og sjá íslenskt samfélag blómstra sem aldrei fyrr. Ég vil leiða og efla enn frekar það frábæra starf sem á sér stað innan Uppreisnar, þar sem ungt fólk getur komið saman til að læra af hvoru öðru, tjá sig um skoðanir sínar og vangaveltur, og taka virkan þátt í að gera íslenskt samfélag að frjálsu og réttlátu samfélagi.

Greinin birtist fyrst á Vísi 6. október 2023