Frelsi leik­skólanna

Þegar styttist í jólin þurfa foreldrar leiksskólabarna að bóka sumarfríið sitt hjá sínum vinnuveitanda til að eiga einhverja von um að geta verið í fríi með börnunum sínum. Fyrir allnokkru myndaðist sú hefð sem síðar varð regla að leiksskólar lokuðu í 4 vikur á hverju sumri. Án þess að hafa gögn fyrir mér í því þá giska ég að þeir loki flestir ef ekki allir í júlí og eitthvað þar um kring. Leikskólarnir hafa val um nákvæma tímasetningu en þeir skulu vera lokaðir í 4 vikur. Um það er ekki val.

Hentar öllum foreldrum að taka sumarfrí í júlí?

Margir foreldrar ná eflaust að skrá sig í frí á þeim tíma sem leiksskólanum er lokað en það er ekki sjálfgefið. Dæmi eru um að báðir foreldrar vinni í þannig umhverfi að hvorugt þeirra kemst í frí í júlí. Þetta á til dæmis við um starfsfólk í heilbrigðiskerfinu. Landspítalinn lokar jú ekki og þá þurfa foreldrarnir að finna einhvern til að vera með leiksskólabarninu á meðan þeir eru í vinnu og síðan fer barnið aftur í frí frá leikskólanum þegar foreldrarnir fá frí.

Undirmönnun leikskóla vegna sumarleyfa

Leikskólastjóri benti mér á það nýlega, að það sé ekki þannig að allir starfsmenn leikskóla vilji taka sumarfrí á sama, fyrirfram boðaða, tíma. Starfsmenn eiga líka oft inni lengra frí en 4 vikur og því þarf að ná að manna leikskólann þegar þeir starfsmenn klára fríið sitt. Áður en það leikskólum var almennt lokað í 4 vikur var mjög algengt að skólafólk starfaði þar í afleysingum á sumrin. Nú er hins vegar snúnara að manna afleysingar, því sumarstarfsmenn vilja ekki 4 vikna leyfi í júlí. Þá stöndum við kannski uppi með það að leiksskólinn sé undirmannaður í kringum um þessar fjórar vikur með auknu álagi á starfsmenn skólanna og foreldra barnanna.

Leiksskólastjórinn velti líka upp þeirri spurningu hvort að með því að minnka möguleika nema á að vinna á sumrin í leiksskólum þá dragi úr möguleikum ungs fólks að kynnast starfi leikskóla. Hvatinn til þess að fara í nám á þessu sviði væri því minni. Þessa tilgátu ber að skoða því ef það er raunin að nemar séu að missa það tækifæri að kynnast þessu mikilvæga starfi þá eigum við að skoða leiðir til að opna þann möguleika á ný.

Mega leikskólar ekki stjórna þessu sjálfir?

Hvað er þá til ráða? Ég er ekki að mælast til þess að við minnkum sumarfrí barna né starfsmanna leiksskóla. Ég veit að það er nauðsynlegt fyrir börn og fullorðna að fá samfellt nokkra vikna frí. En ætti ekki að leyfa leikskólunum sjálfum að ráða hvort þeir loki í fjórar vikur á hverju sumri eða hvort þeir útfæri þetta með öðrum hætti? Leikskólar gætu leyft foreldrum að óska eftir fríi á þeim tíma sem hentar þeirra fjölskyldu, leyft starfsmönnum að velja sér frí og fengið skólafólk í afleysingar. Allt þetta yrði sett í vald hvers leiksskóla fyrir sig og skólarnir gætu sjálfir ákveðið hvað hentar þeim best með tilliti til mönnunar og faglegs starfs.

Greinin birtist fyrst á Vísi 28. nóvember 2023