Grípum tæki­færin og sköpum bjartari fram­tíð

Það er margt sem fara má betur á Íslandi í dag. Síðustu ár hafa verðbólga og vextir yfirtekið samtöl yngri kynslóða og hversu erfitt, og jafnvel óraunhæft það virkar að eignast eigið húsnæði í slíkum aðstæðum. Geðheilsa landsmanna fer versnandi, tímafrekt er að fá tíma í heilsugæslu og ekki lækkar verð á vörum og þjónustu.

Þó staðan sé dökk ætlum við í Viðreisn að horfa á tækifærin. Það er nauðsynlegt að veita framtíðinni aðstoð, svo hún verði björt. Það er hægt að snúa hlutunum við, velja aðrar leiðir og skapa spennandi framtíð. Viðreisn er klár í slaginn. Flokkurinn stendur fyrir alvöru tækifærum, alvöru áætlunum og alvöru lausnum.

Bág staða ríkisfjármála stendur í vegi fyrir því að við uppskerum tækifærin okkar en við getum ekki hækkað skatta á vinnandi fólk og fyrirtæki í landi hárra vaxta og verðbólgu. Það þarf að taka til í fjármálum ríkisins, ekki að hækka skatta á landsmenn sem nú þegar standa mörg hver á hálum ís. Það er því nauðsynlegt að taka til í fjármálum ríkisins, fækka stofnunum, skapa aukið frelsi í viðskiptum og fjölga fjárfestingartækifærum.

Við bætum ekki hag Íslendinga með því að líta hornauga til útlendinga sem hér starfa. Við gerum það ekki með því að skerða réttindi kvenna. Við megum ekki láta þessa kosningabaráttu snúast um neitt annað en að bæta hag allra Íslendinga.

Aðgangur að geðheilbrigðisþjónustu er mjög takmarkaður og hefur núverandi ríkisstjórn vanrækt málaflokkinn. Það er ljóst að kvíði, ótti og ofbeldi á meðal barna hefur aukist til muna. Eitt af því mikilvægasta í samfélaginu er að öllum líði vel og að hvert og eitt barn eigi rétt á ókeypis geðheilbrigðisþjónustu. Viðreisn telur biðlista innan heilbrigðiskerfis til skammar og að vandamálið sé ekki okkar frábæra heilbrigðisstarfsfólki að kenna heldur ríkisstjórnarinnar.

Það er ljóst að við Íslendingar stöndum frammi fyrir ýmsum vandamálum. Viðreisn er klár í slaginn og þegar við mætum í ríkisstjórn munu raunverulegar breytingar fara af stað. Betri hagstjórn, frelsi einstaklingsins og stytting biðlista eru allt hlutir sem Viðreisn mun setja á oddinn. En við gerum þetta ekki ein, við gerum þetta saman.

Greinin birtist fyrst á Vísi 9. nóvember 2024