Hlustum á hvert annað og breytum þessu

Ég hef kennt samningatækni í meistaranámi í stjórnun í Háskólanum í Reykjavík í meira en áratug. Góð samningatækni gengur út á það að hlusta og skilja og leita að lausnum sem þjóna hagsmunum allra. Samningamenn koma yfirleitt að borðinu sannfærð um eigin málstað og við höfum innbyggða tilhneigingu til að dragast inn á átök. Þessi sama tilhneiging er áberandi í umræðunni fyrir Alþingiskosningar. Annað hvort byggjum við upp efnhagslífið eða björgum umhverfinu, annað hvort lækkum við matvælaverð eða fórnum hagsmunum bænda, annað hvort tökum við þátt í alþjóðlegri samvinnu eða verndum hagsmuni Íslands, annað hvort hækkum við skatta eða náum jafnvægi í ríkisfjármálum. Sú hugmynd að ávinningur á einu sviði sé fórn á öðru er rótgróin hugsanavilla. Töfrarnir verða þegar við áttum okkur á því að það þarf ekki að vera annað hvort eða, heldur getum við oft leyst fleiri en eitt vandamál og náð fleiri en einu markmiði í einu.

Hagsmunir okkar allra

Gott dæmi um lausn þar sem allir vinna er skynsamleg nýting grænnar orku til orkuskipta, sem gerir okkur fært að spara milljarða í olíukostnað, minnkar losun gróðurhúsaloftegunda, bætir loftgæði og þar með heilsu fólks og eykur öryggi Íslands í hverfulum heimi. Hófleg kolefnisgjöld, þar sem sá sem mengar greiðir fyrir mengunina, eru jafnframt skynsamleg efnhagsleg ráðstöfun sem ýtir undir þróun grænna lausna, eykur orkusparnað og skynsamlega nýtingu orku, eykur störf í umhverfisvænni atvinnustarfsemi, jafnar samkeppni þar sem mengandi iðnaður greiðir raunverulegan kostnað af framleiðslunni, bætir heilsu með minni mengun, eykur samkeppnishæfni í heimi sem kallar eftir umhverfisvænum vörum, minnkar losun gróðurhúsalofttegunda, sparar kolefniskvóta og getur stutt við íslenskt atvinnulíf – sérstaklega ef tekjurnar af gjaldinu eru notaðar til að lækka álögur á atvinnulífið eins og Viðreisn boðar.

Hlustum til að skilja

Viðreisn hefur lagt áherslu á það í kosningabaráttunni að hlusta og eiga virkt samtal við fólk um allt land í stofnunum, fyrirtækjum og verslunarmiðstöðvum.

Það hefur verið gefandi og skemmtilegt, ekki síst þegar ólík sjónarmið koma fram. Við lærum mest af þeim sem við erum ósammála, þegar við hlustum til að skilja. Ef við vörumst að dragast inn í átök þá finnum við sameiningu lausnir sem gagnast fólki um allt land, bæði atvinnulífi og umhverfi, styrkir efnhagslíf og veitir stuðnings við betri líðan fólks. Til þess þarf breytt hugarfar og örlitla jákvæðni. Breytum þessu saman.

Greinin birtist fyrst á Vísi 26. nóvember 2024