18 nóv Netöryggi og friðhelgi einkalífs – grundvallarréttur allra
Hver hefur ekki lent í því að smella óvart á hlekk og uppgötva, of seint, að tugir þúsunda eru horfnir af kortinu? Eða sent djarfa mynd til elskhuga, bara til að átta sig á að hún er komin á flakk? Þið megið sjálf giska, kæru lesendur, hvor höfunda á hverja sögu.
Netöryggi er lykilþáttur í öryggismálum samtímans þar sem hröð tækniþróun gerir okkur sífellt háðari stafrænu umhverfi og berskjaldaðri fyrir ógnunum sem því fylgja. Netöryggi snýst ekki aðeins um tæknileg úrræði heldur einnig samfélagslega ábyrgð sem varðar persónuöryggi, efnahagslegan stöðugleika og ekki síst persónuvernd og friðhelgi einkalífs. Það er mikið öryggismál að skapa regluverk sem heldur í við tæknibreytingar og veitir öflugar netvarnir án þess að skerða rétt borgaranna til friðhelgi. Jafnframt þurfum við að hafa getu til að bregðast við stafrænum ógnum, skipulega og af yfirvegun og ábyrgð.
Viðreisn er frelsisflokkur. Við leggjum áherslu á lausnir sem tryggja bæði friðhelgi einkalífs og almannaöryggi. Netöryggi varðar okkur öll; einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir, sem reiða sig á örugg samskipti. Það er hlutverk stjórnvalda að tryggja netöryggi allra, óháð stöðu eða staðsetningu. Mikilvægt er að lögreglan, saksóknarar og aðrar réttarvörslustofnanir séu vel í stakk búnar til að takast á við netbrot þar sem friðhelgi einstaklinga er í húfi.
Netöryggisstefna 2022-2037 og aðgerðaráætlun til ársins 2026 eru skref í rétta átt. Reglubundin endurskoðun þeirra tryggir að stefnan fylgi hraðri þróun á sviði tækni og netógna, sem hefur áhrif á persónuvernd og friðhelgi almennings. Aðgerðirnar taka meðal annars á netglæpum og fela í sér sjö lykilþætti á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins:
- Fræðsluátak um persónuvernd, miðlalæsi og netöryggi barna.
- Greining á valdheimildum stjórnvalda vegna netárása.
- Endurskoðun refsi- og réttarfarslaga varðandi afbrot tengd Netinu.
- Endurmat á skipulagi lögreglunnar til að takast á við netbrot.
- Aukin fræðsla innan réttarvörslukerfisins um netglæpi.
- Aukið öryggi barna á netinu.
- Efling tæknilegrar getu lögreglunnar við rannsóknir á barnaníðsefnis.
Það er brýnt að ljúka þessum aðgerðum eins fljótt og kostur er. Netbrot og netsvik gegn einstaklingum og fyrirtækjum eru í vaxandi mæli, oft af hálfu erlendra brotahópa sem láta ekki landamæri hindra sig. Lögreglan þarf að fá stuðning og sérfræðiþekkingu til að tryggja öryggi og friðhelgi borgaranna. Einnig þarf að stofna sérstaka miðstöð netbrotarannsókna (e. cyber crime centre) líkt og tíðkast í flestum nágrannaríkjum okkar.
Viðreisn styður þessa stefnu, þar sem almannahagsmunir eru settir framar sérhagsmunum. Með öflugri fræðslu, bættri löggjöf og aðgengilegum úrræðum á sviði netöryggis getum við eflt vitund og hæfni samfélagsins á þessu sviði. Geta lögreglunnar þarf að vera nægilega öflug til að takast á við netöryggisáskoranir, svo hún geti verndað öryggi og friðhelgi allra. Með því að horfa á netöryggi sem hluta af almannaöryggi stöndum við sterkar gegn utanaðkomandi ógnum og tryggjum að netöryggi sé grundvallarréttur allra.