06 feb Ljós í stað lausna á Reykjanesbraut
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt að setja upp ljósastýringu við hringtorg Reykjanesbrautar og Lækjargötu „til reynslu strax“, á grundvelli greininga COWI og Vegagerðarinnar. Þær sömu greiningar sýna þó að hér er ekki verið að leysa vanda, heldur færa hann til og mögulega auka vandann á öðrum stöðum.
Samkvæmt greiningunni styttast raðir á Lækjargötu og Hlíðarbergi verulega með ljósastýringu. Á móti lengjast raðir á Reykjanesbraut um allt að kílómetra eða meira á annatíma. Tafir á einni mikilvægustu samgönguæð landsins aukast því markvisst, þótt heildartafir í hringtorginu lækki á blaði.
Í bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs, sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar tók undir, er jafnframt haldið fram að aðgerðin dragi úr gegnumakstri um íbúðahverfi. Greiningarnar sjálfar benda hins vegar til hins gagnstæða: auknar tafir á Reykjanesbraut leiða til breytinga á leiðarvali og meiri umferðar um íbúagötur Hafnarfjarðar, svo sem Suðurbraut, Strandgötu, Fjarðargötu og Setberg. Götur sem fæstar mega við meiri umferð eins og staðan er í dag. Það er einnig mikilvægt að nefna að ráðgjafar setja fyrirvara við líkönin og benda á að þau kunni að vanmeta þessi áhrif, sérstaklega á annatíma.
Ljósastýringin er sögð nauðsynleg bráðabirgðalausn þar til framtíðarlausn Reykjanesbrautar fer í framkvæmd samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. En þar blasir við stærra vandamál. Núverandi meirihluti í Hafnarfirði hefur haft nær áratug til að beita sér fyrir varanlegri lausn, bæði með aðkomu að samgöngusáttmálanum og með samgönguráðherra úr sömu stjórnmálahreyfingu í fyrri ríkisstjórn.
Þrátt fyrir það er staðan sú sama og áður, brugðist við með rauðum ljósum á stofnbraut. Það er ekki framtíðarsýn heldur seinkuð ábyrgð.
Reykjanesbraut klýfur Hafnarfjörð, en hún er jafnframt lífæð umferðar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi. Lausnin felst ekki í því að stöðva hana, heldur í heildstæðri framtíðarlausn sem hefði átt að vera komin í farveg fyrir löngu.