María Ellen nýr oddviti Viðreisnar í Kópavogi

María Ellen Steingrímsdóttir var kjörin oddviti Viðreisnar í  Kópavogi í rafrænu leiðtogaprófkjöri sem fram fór í dag. Hún mun því leiða lista Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum.  Í öðru sæti lenti Pétur Björgvin Sveinsson og í því þriðja Arnar Grétarsson. Þrjú efstu sæti prófkjörsins eru bindandi fyrir uppstillingarnefnd Viðreisnar í Kópavogi.

María Ellen hlaut  240 atkvæði í fyrsta sæti listans. Pétur Björgvin hlaut 272 atkvæði í 1.-2. sæti og Arnar hlaut 319 atkvæði í 1.-3. sæti.

„Ég er mjög þakklát fyrir það traust sem Viðreisnarfólk í Kópavogi hefur sýnt mér og einstaklega þakklát samframbjóðendum mínum fyrir drengilega og góða baráttu,“ segir María Ellen. „Við erum tilbúin til að sýna að við getum staðið fyrir nýrri sýn fyrir Kópavog í vor, með sterkum lista og málefni, þar sem íbúar eru settir í fyrsta sæti.“

Úrslitin voru kynnt á fjölmennri kosningavöku á 27 Mathús & bar, Kópavogi í kvöld.

Á kjörskrá voru 823 og var kjörsókn 76%.

1 atkvæði var autt

 

Gild atkvæði fóru sem hér segir:

Nafn 1. sæti 2. sæti Atkvæði 1-2 sæti 3. sæti Atkvæði 1-3 sæti
María Ellen Steingrímsdóttir 240 59 299 75 374
Pétur Björgvin Sveinsson 225 47 272 64 336
Arnar Grétarsson 29 212 241 78 319
Jóhanna Pálsdóttir 50 155 205 78 283
Ísak Leon Júlíusson 16 21 37 114 151
Birgir Örn Guðjónsson 63 20 83 32 115
Ester Halldórsdóttir 5 27 32 72 104