Viðreisn býður fram í Ísafjarðarbæ

Viðreisn mun bjóða fram í Ísafjarðarbæ í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Viðreisn hefur verið hluti af Í-listanum en ekki náðist samkomulag um áframhaldandi samstarf á þeim grunni. Flokkarnir sem stóðu að Í-listanum skilja í sátt og með þökk fyrir gott samstarf á umliðnum árum.

Viðreisn mun því sækja fram undir eigin merkjum með hag bæjarfélagsins og íbúa þess að leiðarljósi. Það er mikill hugur í Viðreisnarfólki á svæðinu og nokkuð víst að næstu mánuðir verða fjörugir.

Viltu vera með?

Uppstillinganefnd hefur hafið störf og mun vinna að því að stilla upp sigurstranglegum lista á næstu dögum.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í starfinu, taka sæti á lista eða bara forvitnast skaltu senda tölvupóst á vestfirdir@vidreisn.is.

Komdu og vertu með!