11 mar Arnar Páll leiðir lista Viðreisnar í Reykjanesbæ
Nýr listi Viðreisnar var samþykktur með lófaklappi á aðalfundi Viðreisnar á Suðurnesjum, sem fram fór í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Viðreisn býr fram lista í Reykjanesbæ.
Arnar Páll Guðmundsson, viðskiptafræðingur og fv. formaður Viðreisnar á Suðurnesjum leiðir listann. Í öðru sæti er Davíð Skarphéðinsson, byggingafræðingur, í þriðja sæti er Ásta Kristín Guðmundsdóttir, kennari og verkefnastjóri og í því fjórða er Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir, gæðastjóri Reykjanesbæjar.
„Auðmjúkur og stoltur tek ég að mér að leiða svona öflugan hóp í komandi kosningum og þakka það traust sem mér hefur verið sýnt,“ segir Arnar Páll. „Með listanum okkar blása ferskir vindar. Hann er fjölbreyttur og breiður og í honum sameinast reynsla, menntun og þekking sem spannar helstu málaflokka sveitarstjórnarstigsins. Allt frá velferð og menntamálum til fjármála, skipulags og atvinnuþróunar. Nú er komið að því að fara og hlusta á raddir bæjarbúa. Þannig tryggjum við að forgangsröðunin endurspegli raunverulegar þarfir og framtíðarsýn íbúa í okkar frábæra Reykjanesbæ.“
Á aðalfundinum var einnig kosin ný stjórn: Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir formaður, Sigrún G. Bates, Jón Garðar Snædal Jónsson, Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir, og Sveinn Enok Jóhannsson. Varamenn voru kosnir þeir Davíð Skarphéðinsson og Arnar Páll Guðmundsson.
Listi Viðreisnar í Reykjanesbæ:
- Arnar Páll Guðmundsson, viðskiptafræðingur og mannauðsráðgjafi
- Davíð Skarphéðinsson, byggingafræðingur
- Ásta Kristín Guðmundsdóttir, kennari og verkefnastjóri
- Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir, gæðastjóri
- Sveinn Enok Jóhannsson, bóndi í Höfnum
- Sigrún G. Bates, fótaaðgerðafræðingur
- Rúnar Þór Guðmundsson, byggingafræðingur
- Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun
- Daníel Birgir Björgvinsson, pípulagningameistari
- Brynja Ýr Júlíusdóttir, umsjónarkennari
- Jón Garðar Snædal Jónsson, verkefnastjóri
- Gunnhildur Brynjólfssdóttir, verslunarstjóri
- Hafsteinn Þórir Haraldsson, Verslunarstjóri
- Helena Björk Rúnarsdóttir, sundlaugarvörður
- Ingi Eggert Ásbjarnarson, verkefnastjóri
- Hildigunnur Eir Kristjánsdóttir, nemi
- Haukur Hilmarsson, kennari og rennismiður
- Ingibjörg Ýr Smáradóttir, nemi
- Fannar Jónsson, sundlaugarvörður
- Alda Friðný Skagfjörð Áskelsdóttir, ráðgjafi
- Sigurður Jóhannsson, veðurathugunarmaður
- Bjarklind Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur/MBA