Guðlaugur leiðir lista Viðreisnar í Garðabæ

Guðlaugur Kristmundsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi framkvæmdastjóri Viðreisnar, er oddviti Viðreisnar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta var ákveðið á fjölmennum aðalfundi félagsins sem haldinn var í félagsheimili Stjörnunnar í gærkvöldi.

Í öðru sæti listans er Harpa Þorsteinsdóttir, lýðheilsufræðingur og varabæjarfulltrúi. Í þriðja sæti er Jón Bjarni Steinsson, lögfræðingur og viðburðahaldari. Í fjórða sæti er Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir, frumkvöðull og framkvæmdastjóri, og í fimmta sæti er Hreiðar Þór Jónsson framkvæmdastjóri.

Guðlaugur segist hlakka til samstarfsins og samtalsins við bæjarbúa á næstu mánuðum.

„Garðabær er öflugt samfélag þar sem félagsauður er sterkur og íbúar láta sig þróun bæjarins varða. Við í Viðreisn viljum byggja áfram á þessum styrk, þar sem kraftar allra fái að njóta sín og tryggja að enginn verði skilinn eftir. Góður Garðabær getur orðið betri með sterkri og framsækinni sýn Viðreisnar í stjórn bæjarins. Það er heldur engin tilviljun að ég segi stundum að vagga Viðreisnar sé í Garðabæ.”

Harpa Þorsteinsdóttir, sem skipar annað sæti listans, segir mikilvægt að horfa til framtíðar í uppbyggingu bæjarins.

„Garðabær hefur alla burði til að vera leiðandi sveitarfélag þegar kemur að lýðheilsu, menningu og góðu umhverfi fyrir fjölskyldur. Við viljum vinna með bæjarbúum að því að styrkja samfélagið enn frekar.“

Framboðslistinn verður kynntur formlega í kvöld kl. 20.00 í Hönnunarsafni Íslands þar sem frambjóðendur og stuðningsfólk fagna áfanganum. Með staðarvalinu vilja frambjóðendur undirstrika mikilvægi menningar í Garðabæ og þá möguleika sem felast í áframhaldandi uppbyggingu hennar.

Þetta er í annað sinn sem Viðreisn býður fram undir eigin merkjum í Garðabæ. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum fékk framboðið rúmlega 13% fylgi, sem var þá besti árangur flokksins í sveitarstjórnarkosningum á landsvísu.

Listi Viðreisnar í Garðabæ er:

  1. Guðlaugur Kristmundsson, bæjarfulltrúi og fyrrv. framkvæmdastjóri Viðreisnar
  2. Harpa Þorsteinsdóttir, lýðheilsufræðingur og varabæjarfulltrúi
  3. Jón Bjarni Steinsson, lögfræðingur og viðburðahaldari
  4. Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir, frumkvöðull og framkvæmdastjóri
  5. Hreiðar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri
  6. Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir, lögfræðingur 
  7. Júlíus Arnarson, framkvæmdastjóri
  8. Þyrí Halla Steingrímsdóttir, lögfræðingur
  9. Árni Björn Eiríksson, viðskiptafræðingur
  10. Herdís Anna Ingimarsdóttir, verkefnastjóri og markþjálfi
  11. Hafsteinn Ezekíel Hafsteinsson, sölustjóri
  12. Geirþrúður Alfreðsdóttir, verkfræðingur
  13. Jens Guðjón Einarsson, fyrrv. kennari og framkvæmdastjóri
  14. Maria Rosario Blöndal, markaðsstjóri
  15. Viðar Kristinsson, þjónustustjóri
  16. Tinna Borg Arnfinnsdóttir, innri endurskoðandi
  17. Eyþór Eðvarðsson, stjórnendaþjálfari og ráðgjafi
  18. Ásta Sigríður Guðjónsdóttir, sérfræðingur í markaðs- og samskiptamálum
  19. Ingi Þór Hermannsson, fyrrv. formaður golfklúbbsins Odda
  20. Heiðrún Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur
  21. Eiríkur Björn Björgvinsson, alþingismaður og fyrrum bæjarstjóri
  22. Sara Dögg Svanhildardóttir, fyrrv. bæjarfullrúi