Kosningar

Nú er komið að því að kjósa til sveitarstjórna og það er gríðarlega jákvætt að sjá hversu margir eru boðnir og búnir til þess að stíga fram og taka þátt í því að vinna fyrir samfélagið okkar. Það er ekki alltaf auðvelt að ákveða að gefa fólki færi á því að skjóta sig og sín málefni niður
eða dæma það hvernig við komum fram. En þegar vel tekst til þá er þetta alveg einstaklega gefandi vettvangur og fátt betra en fá að leggja sitt á vogarskálarnar fyrir heimabæinn sinn.

Þakklæti
Það er kannski öfugsnúið en ég er þakklát að sjá að hér höfum við mikið úrval af fólki, marga lista og margar áherslur. Ég ber virðingu fyrir því að hvert og eitt okkar sem erum í framboði erum að stíga fram með það að markmiði að vinna að því sem við teljum að sé heillavænlegast fyrir samfélagið okkar.
Mörgum finnst pólitík leiðinleg af því að það myndast stundum þessi ótrúlega ómálefnalegi leðjuslagur þar sem fólk virðist helst bara vilja gera lítið úr andstæðingnum. Slík pólitík er líka leiðinleg. Ég vona að okkur beri gæfa til þess hér í Mosfellsbæ að vera málefnaleg og takast á um hugsjónir okkar á eðlilegan og skemmtilegan hátt. Umræða eins og hefur verið í samfélaginu undanfarið þar sem pólitískar keilur eru slegnar með því að tala niður regnbogafánann eða aðra hópa vona ég að verði ekki leiðarstef frambjóðenda hér í Mosfellsbæ. Förum ekki í manninn heldur boltann og berum virðingu fyrir hvort öðru. Þannig náum við árangri saman, sama í hvaða flokki við stöndum.

Þú hefur áhrif
Ég vildi að allir sæju kosningar eins og þær raunverulega eru. Tækifæri til þess að hafa áhrif á umhverfið sitt, vegferðina sem sveitarfélagið er á og framtíð þess. Það er því mikilvægt að hvert og eitt okkar kynni sér stefnur framboðanna, fólkið á listunum og máti það við sínar skoðanir og kjósi svo eftir sannfæringu sinni.
Þann 16. maí er þitt tækifæri til þess að ákveða hvert Mosfellsbær á að stefna næstu 4 árin. Þú ákveður hvaða fólk, hvaða hugsjón og hvaða flokkur fær þitt atkvæði og með því ert þú að móta hver framtíð bæjarins verður.
Með því að veita mér þitt atkvæði mun ég lofa því að gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að halda í Mosfellsbæjarandann, að hér verði fyrirmyndar samfélag sem hlúir saman að öllum sínum íbúum og tengist þessum sterku böndum að vera Mosfellingar.

Setjum x við C þann 16. maí
Fyrir Mosó

Elín Anna Gísladóttir 3. sæti á lista
Viðreisnar í Mosfellsbæ

Greinin birtist fyrst í Mosfelling, 24. apríl 2026