Viðreisn samþykkir lista á Akranesi

Viðreisn, sem býður nú fram í fyrsta skipti á Akranesi, hefur samþykkt lista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí.

Jón Guðni Guðmundsson, burðarþolssérfræðingur og brúarhönnuður, Helga Björg Þrastardóttir, matreiðslumeistari er í öðru sæti, Ingvar Örn Ákason, verkefnastjóri er í þriðja sæti og Guðný Sara Birgisdóttir, fjáröflunarstjóri Krafts og listakona er í fjórða sæti.

„Ég hef mikla trú á því að Viðreisn á Akranesi muni koma inn af krafti í bæjarmálin með lausnamiðaða nálgun og jákvæðni að leiðarljósi. Við ætlum aðs styrkja rekstur sveitarfélagsins, tryggja áfram góð skilyrði fyrir fjölskyldufólk á svæðinu og hlúa að grunnþjónustunni. Húsnæðismál, skipulagsmál og atvinnumál eru grunnstoðir samfélagsins sem mikilvægt er að samþætta með öllum öðrum málaflokkum. Á komandi kjörtímabili eru mikil tækifæri fólgin í því að sækja fram fyrir Akranes á öllum sviðum.“ segir Jón Guðni oddviti Viðreisnar á Akranesi

Listi Viðreisnar á Akranesi í heild:

1. Jón Guðni Guðmundsson burðarþolssérfræðingur

2. Helga Björg Þrastardóttir matreiðslumeistari

3. Ingvar Örn Ákason verkefnastjóri

4. Guðný Sara Birgisdóttir, fjáröflunarstjóri Krafts og listakona

5. Guðmundur Claxton tölvunarfræðingur

6. Tinna Steindórsdóttir grunnskólakennari

7. Ellert Hjelm verslunarmaður

8. Aldís Ylfa Heimisdóttir, verkefnastjóri og knattspyrnuþjálfari

9. Alexander Aron Guðjónsson framkvæmdastjóri

10. Hugrún Eva Valdimarsdóttir hjúkrunarfræðingur

11. Jóel Þór Jóhannesson, stuðningsfulltrúi og markaðsfulltrúi

12. Drífa Dröfn Siggerðardóttir verslunareigandi

13. Sigfús Agnar Jónsson, vélfræðingur og vaktstjóri

14. Ragnheiður Ásta Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri umbóta

15. Ýmir Hjálmsson háskólanemi

16. Elírós Kjaran Zar kvikmyndagerðakona

17. Jóhannes Finnur Halldórsson, eldri borgari

18. Edit Ómarsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjaþjónustu og varaþingmaður