Eldra fólk vill hafa áhrif

Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að kona á áttræðisaldri sé að gefa kost á sér á lista í sveitarstjórnarkosningum en hér er ég.  Eftir að hafa verið að sinna málefnum eldri borgara  í átta ár sem formaður FEBÍ og í stjórn LEB get ég ekki setið hjá.  Þar er af mörgu að taka en  húsnæðismál er mér ofarlega í huga.

Skortur á lóðum hefur hamlað uppbyggingu húsnæðis þar sem eldri borgarar geta eða þurfa að minnka við sig húsnæði.  Bent hefur verið á Hlíf en í dag telja þeir sem eru 60plús að þær íbúðir séu of litlar. Þá þarf ég að nefna að nauðsynlegt er að sjá fyrir endann á efstu hæðinni á Hlíf þar sem áætlaðar eru þrjár íbúðir sem þarf að fullgera . Þar hafa verið skiptar skoðanir  hvort þar eigi að leigja eða selja en það þarf að fá úr því skorið og klára verkið.  Að vísu  leit út fyrir að góð blokk  væri að fara af stað fyrir nokkrum árum en allir vita hvernig það fór.  Nauðsynlegt er að sveitarfélagið tryggi lóðir og styðji við uppbyggingu íbúða og jafnframt komi að uppbyggingu hagkvæmra leiguíbúða á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga  fyrir fólk á öllum aldri.

Ísafjarðarbær hefur gefið afslátt af fasteignagjöldum sem er tekjutengt .  Hann þarf að vera sýnilegri.  Slíkar aðgerðir geta skipt sköpum fyrir marga sem búa í eigin húsnæði en glíma við lágar tekjur og hækkandi framfærslu.  Sagt er að eldra fólk vilji vera sem lengst heima hjá sér og er það af hinu góða. En þó svo að fólk geti verið heima þá þarf þetta sama fólk kannski á þjónustu að halda s.s. lóðaumhirðu og snjómokstur.  Gott gæti verið að hægt sé að hringja eftir svona þjónustu og ég tek fram að það er ekki verið að tala um að það sé án greiðslu.

Ísafjarðarbær má gera betur í félagsstarfi eldri borgara sem þeir eiga að gera skv lögum. Félagsstarf á Ísafirði er alfarið á vegum Félags eldri borgara.  Mörg sveitarfélög hafa það þannig að eldri borgara félög sjá um félagsstarfið og fá þá greitt frá sveitarfélaginu.  Að vísu leggur Bærinn til húsnæði að kostnaðarlausu en það gera önnur sveitarfélög líka .

Ísafjarðarbær tók / tekur þátt í verkefni sem fékk nafnið „ Gott að eldast „ sem var gefin tímalínan 2022 til 2027 sem á að vera heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk.  Þarna á að skoða að fjölga möguleikum til aukinnar virkni og bættrar lýðheilsu og gera fólki kleift að búa lengur heima  því breytt aldurssamsetning þjóðarinnar kallar á aðlögunarhæfni samfélagsins og lífið er jafnverðmætt á öllum aldursskeiðum.  Einhverra hluta vegna hefur þetta verkefni ekki verið mikið virkt hér sem er leiðinlegt þegar maður heyrir um virknina annars staðar.

Sveitarstjórnarkosningar snúast fyrst og fremst um lífsgæði fólks í nærumhverfi sínu. Fyrir  fólk skipta ákvarðanir sveitarfélaga sérstaklega miklu máli enda hafa þau víðtæk áhrif á þjónustu, húsnæðismál, félagslíf og ýmis gjöld sem snert daglegt líf.

Því er eðlilegt að spurt sé – Hvað ætla framboðin að gera fyrir eldra fólk ?

Sigrún Camilla Halldórsdóttir,

18.sæti á lista Viðreisnar í Ísafjarðarbæ.