Mosfellsbær í fremstu röð – treystu Viðreisn fyrir framtíðinni

Kæru Mosfellingar,

Mosfellsbær stendur á tímamótum. Við getum valið að taka skref fram á við og byggt upp samfélag sem er einfaldara, skilvirkara og réttlátara fyrir alla. Við í Viðreisn veljum framfarir.

Við komum til leiks með reynslu sem skiptir máli. Hópurinn okkar sameinar þekkingu úr rekstri, menntun, skipulagi og krísustjórnun. Við lofum ekki bara breytingum, við framkvæmum þær. Reynslan af síðasta kjörtímabili sýnir það svart á hvítu.

Gagnsæ stjórnsýsla og ábyrg fjármál

Við viljum einfaldari og stafræna stjórnsýslu þar sem íbúar sjá skýrt hvernig ákvarðanir eru teknar og hvert skattfé þeirra fer. Við setjum mælanleg markmið og tryggjum að fjármunir bæjarbúa nýtist þar sem þeir skipta mestu máli. Ábyrgur rekstur og hóflegar álögur eru lykillinn að trausti.

Börnin í forgangi

Börnin eru hjartað í bænum okkar. Við höfum þegar stigið mikilvæg skref – en við ætlum lengra.
Við viljum tryggja dagvistun frá 12 mánaða aldri, efla sálfræðiþjónustu í skólum og skapa betra starfsumhverfi fyrir kennara. Eitt gjald – margar íþróttir: Við viljum að börn í 1.–3. bekk geti prófað fleiri íþróttir innan síns félags fyrir eitt gjald.

Skipulag sem þjónar fólki

Við ætlum að bæta samgöngur, auka valfrelsi og tryggja öryggi í umhverfi okkar. Við styðjum Sundabraut, Borgarlínu og raunhæfar lausnir til að létta á umferð. Við viljum tengja bæinn betur saman og byggja upp mannvæn hverfi þar sem fólk vill búa.

Samfélag fyrir alla

Við viljum bæ þar sem allir hafa jöfn tækifæri – börn, fjölskyldur og eldri borgarar. Þar sem velferð, heilsuefling og öflugt íþrótta- og menningarlíf styður við lífsgæði. Þar sem hlustað er á íbúa og unnið með þeim.Framtíðin gerist ekki af sjálfu sér. Hún byggist á skýrum ákvörðunum, ábyrgð og hugrekki til að gera betur.

Setjum X við C á kjördag.
Fyrir öflugri, einfaldari og réttlátari Mosfellsbæ.

Gylfi Þór Þorsteinsson
Oddviti Viðreisnar

 

Greinin birtist fyrst í Mosfelling, 14. maí 2026