,,Og svo lofum við líka betra veðri!”

Rekstur á sveitarfélagi er eins og að reka heimili.  Tekjur þurfa að hrökkva fyrir úgjöldum, spara þarf fyrir stærri útgjöldum og stundum þarf að taka lán fyrir þeim allra stærstu.  Líkt og við þekkjum af heimilisrekstri þá þurfum við að velja og hafna og forgangsraða – og engar töfralausnir eru til.

Fjármál bæjarins eru nú ekkert sérlega spennandi, svona fyrir flest okkar.  Tekjur bæjarins eru aðallega útsvarstekjur og fasteignaskattar.  Útgjöldin liggja svo að stærstum hluta rekstri leik- og grunnskóla, félagsþjónustu og íþróttastarfi.  Að sjálfsögðu heldur bærinn út alls konar rekstri þar til viðbótar, en þetta eru stærstu liðirnir.

Á síðasta ári dugðu tekjur fyrir gjöldum og gott betur.  Bærinn jók lántökur til að halda áfram langtímauppbyggingu, rétt eins og við tökum húsnæðislán þegar við þurfum að stækka við okkur húsnæði.  

Þá gerist það stundum að ýmsir aðilar stíga fram í aðdraganda kosninga og boða alls konar aukin útgjöld og lægri skatta. Og hver vill ekki lægri skatta og að bærinn geri allskonar fyrir alla?

Við í Viðreisn erum skynsöm í heimilisbókhaldinu, og spyrjum hvað þetta kostar.  Ef við viljum fara í sumarfrí til Tene með fjölskylduna þurfum við að eiga fyrir því.  Hvernig söfnum fyrir fríinu?  Þá dugar ekki að segja að við bara finnum út úr því síðar.  Það þarf að standa vörð um heimilisbókhaldið.  Það þarf að sýna ábyrgð.

En ekki eru allir ábyrgir.  Sumir flokkar boða lægri skatta og meiri útgjöld, og allt saman muni reddast með því “að taka til í rekstrinum.”  Ekki er ég á móti lægri sköttum eða setja fjármagn í góða hluti – en af því að ég kem úr rekstri fyrirtækja þá er mér tamt að spyrja hvaðan þeir peningar eigi að koma; hvar eigi að taka til í rekstrinum.  Og þá verður fátt um svör. Mörg hundruð milljónir liggja nú ekki á lausu.

Hér eru dæmi um vinsæl loforð vongóðra frambjóðenda: Frítt í strætó fyrir grunnskólabörn í Mosó (50 milljónir á ári).  Lækkun fasteignagjalda (kostar um 165 milljónir á ári miðað við 10% lækkun).  Þá spyrjum við í Viðreisn: “Hvaðan eiga þessir fjármunir að koma?”  Þá sjáum við undir hælana á hinum vongóðu frambjóðendum sem geta ekki svarað því.  

Það er ekki nóg að lofa bara, það verður að vera innstæða fyrir loforðum.  Annars er þetta bara eins og að lofa betra veðri..

 

Höfundur er í 5. sæti á lista Viðreisnar og annar stofnanda indó sparisjóðs

 

Greinin birtist fyrst í Mosfelling, 14. maí 2026.