24 okt Löggæsla er alvörumál
Lögreglan á Íslandi er ein af grunnstoðum ríkisins og hefur það mikilvæga hlutverk að halda uppi lögum og reglu á landinu. Mikilvægi löggæslunnar sést meðal annars af því að alla daga eru störf hennar og viðfangsefni til umfjöllunar í fjölmiðlum landsins.
Þrátt fyrir óumdeilt mikilvægi lögreglunnar hefur löggæsla á Íslandi liðið fyrir fjárskort undanfarinn áratug eða svo. Tölurnar tala sínu máli og lögreglumönnum hefur fækkað um 80 frá árinu 2007. Verkefnum hefur hins vegar auðvitað ekki fækkað, álag hefur til dæmi álag stóraukist á vegum landsins vegna aukins fjölda ferðamanna.
Rannsóknardeildir lögreglunnar hafa sömuleiðis búið við fjárskort sem veldur því að meðferð mála lengist. Á sama tíma hefur verið ráðist í umfangsmiklar skipulagsbreytingar, lögregluumdæmum hefur fækkað og lögreglulið stækkuð.
Lögreglumönnum fækkar
Reyndar er það svo þegar réttarkerfið er rýnt í heild sinni að þá blasir við að ákæruvaldið hefur einnig glímt við fjársvelti árum saman.Þá hafa dómar fyrnst vegna þess að Fangelsismálastofnun getur ekki boðað dæmda menn í afplánun vegna plássleysis. Embætti ríkissaksóknara hefur ekki getað afgreitt umfangsmikil sakamál í samræmi við eigin viðmið um heppilegan málsmeðferðartíma. Hvaða afleiðingar hefur þetta?
Alvarleg sakamál eru lengi til meðferðar hjá kerfinu, vegna þess að of fáir starfsmenn hafa of mörg mál á sinnu könnu. Kynferðisbrotamál eru til dæmis gjarnan rúmt ár til meðferðar hjá ákæruvaldinu áður en ákvörðun um ákæru liggur fyrir.
Samfélag sem hefur skilning á alvarleika kynferðisbrota hlýtur að sjá til þess að þær stofnanir sem hafa þessi alvarlegu afbrot til meðferðar, lögregla og ákæruvald, héraðssaksóknari og Ríkissaksóknari, sem og dómstólar, hafi fjármagn til þess að geta sinnt þessum málum. Við eigum sem samfélag að stuðla að því að aukinni þekkingu í rannsóknum sakamála fylgi fjármagn til að gera betur. Svo er því miður ekki í dag.
Samtal til árangurs
Það er nauðsynlegt að horfa á löggæsluna og kerfið utan um sakamál á Íslandi heildstætt. Niðurskurður á einum stað verður til þess álag eykst á næsta stað í keðjunni. Við munum leggja áherslu á heildstæða nálgun og samvinnu við lögreglustjóra landsins um uppbyggingu. Það verður þó ekki framhjá því lítið að í grunninn býr lögregla einfaldlega við þann veruleika að starfsmannafjöldi er ekki í samræmi við aukin verkefni. Við því ástandi verður að bregðast.