10 apr Börnin geta ekki beðið
Fyrstu viðbrögð Garðabæjar vegna Covid-19 faraldursins voru samþykkt í bæjarstjórn nýlega. Nú reynir á innviði sveitarfélagsins, getu og styrk til þess að mæta þeim sem munu af ólíkum ástæðum verða fyrir vágestinum.
Atvinnuleysi eykst til muna, allt skólahald er skert og íþrótta- og tómstundastarf liggur niðri, sem ógnar öryggi barna og ungmenna sem búa við einhvers konar vanrækslu. Velferð þeirra er í húfi þegar hefðbundna öryggisnetið í skólum, íþrótta- og tómstundastarfi er rofið. Við verðum að grípa til sértækra aðgerða til að tryggja velferð þeirra sem allra best.
Fjölmargir sem koma að málefnum barna, þar á meðal barnamálaráðherra, hafa kallað eftir því að við öll sem eitt stöndum vaktina. Verðum á varðbergi og hikum ekki við að láta vita ef við höfum einhverjar áhyggjur af velferð barna og ungmenna í kringum okkur. Ekki treysta á að aðrir geri það ef þú gerir það ekki sjálf/ur.
Í aðgerðaáætlun Garðabæjar segir að auðvelda þurfi íbúum að senda inn ábendingar vegna vanrækslu barna og ungmenna sem og vegna gruns um heimilisofbeldi og var það sérstök áhersla okkar í Garðabæjarlistanum. Mörg sveitarfélög brugðust hratt við breyttri stöðu með aðgengi og upplýsingum á heimasíðum þar sem annars vegar er auðvelt fyrir barn að láta vita af áhyggjum sínum og hinsvegar fyrir almenning að láta vita af áhyggjum sínum af velferð náungans. Þetta skiptir máli og því til mikils að vinna að hraða þessum einföldu aðgerðum einnig hér í Garðabæ. Ekkert samfélag er laust við vanrækslu á börnum og ungmennum eða heimilisofbeldi, það er sorgleg staðreynd.
Það eru því vonbrigði að ekki hafi þegar verið brugðist við þessu ákalli í Garðabæ. Það er ekki nóg að vísa til vinnu við velferð barna og innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þegar allt leikur í lyndi. Núna hefur öllu verið kollvarpað og nauðsynlegt að bregðast hratt, ákveðið og örugglega við. Ekkert getur staðið okkur nær. Og við getum ekki látið börnin bíða.
Tökum öll ábyrgð. Stöndum saman um velferð allra. Fyrir utan að ráðast gegn heilsu okkar mun vágesturinn óhjákvæmilega valda miklu efnahagslegu tjóni og hann gerir sitt besta til að ráðast að andlegri heilsu okkar. Við eigum að taka saman höndum og berjast af fullu afli við hann, sérstaklega þar sem mikil og góð sóknarfæri bjóðast.