27 okt Getur unga fólkið tekið völdin?
„Ég kýs sjálfstæðisflokkinn, ég hef alltaf kosið sjálfstæðisflokkinn og mun alltaf kjósa sjálfstæðisflokkinn“
Mér verður stundum hugsað til samtals sem ég átti við aldraða frænku mína fyrir um ári síðan. Ég í barnaskap mínum og einfeldni kom því með spurningu sem ég hélt að myndi kannski hreyfa við henni og sagði „En núna hefur sjálfstæðisflokkurinn verið við völd meira og minna í um 20 ár. Það hefur nú ekki verið gert mikið fyrir eldra fólk og öryrkja á þeim tíma. Núna síðast afnámu þeir frítekjumark af launum ellilífeyrisþega, hvað finnst þér um það ?“
Það kom smá þögn og svo sagði hún, „Ég kýs sjálfstæðisflokkinn, ég hef alltaf kosið sjálfstæðisflokkinn og mun alltaf kjósa sjálfstæðisflokkinn“
Ég vissi varla hvort ég ætti að hlæja eða gráta. En svo varð ég eiginlega bara pínu sorgmæddur. Þetta var þá eins og mig hafði alltaf grunað. Þeir voru áskrifendur að fylgi. Það skiptir engu máli hversu illa þeir stóðu sig fyrir almenning í landinu, hversu grímulaus spillingin er, hvernig flokknum hefur verið stjórnað af sérhagsmunaöflum og flokkseigendaklíkunni í áraraðir. Fyrir fólk með þetta viðhorf skiptir það engu máli. Það styður liðið sitt fram í rauðan dauðan.
Fólk sem eyðir atkvæði sínu í flokkinn sinn án hugsunar, án þess að vega og meta á gagnrýnin hátt fyrri loforð og efndir, án þess að horfa gagnrýnum augum á það fyrir hvað hann stendur og hvert hann er að stefna er ekki bara að viðhalda ósanngjörnu valdajafnvægi heldur er það að leggja blessun sína yfir allt sem flokkurinn og forysta hans stendur fyrir. Öfugt við það sem það heldur þá er það ekki að viðhald styrk flokksins heldur er það að mola hann niður, innan frá.
En svo hugsa ég um unga fólkið okkar. Það er víðsýnna en við sem eldri erum. Heimurinn er miklu minni í dag en fyrir 20 árum og hann heldur áfram að minnka. Það sér heiminn öðruvísi en við. Það gerir sér grein fyrir að það hefur val. Það þarf ekki að búa hérna á Íslandi frekar en það vill í framtíðinni. Það þarf ekki að leggja blessun sína yfir hvað sem er til að komast áfram í lífinu. Það hefur sterka réttlætiskennd og lítið þol gagnvart spillingu, það vill jöfnuð, réttlæti og heiðarleika.
Þetta er framtíðin, þetta er fólkið sem hefur tækifærið til að breyta til hins betra. Þetta er fólkið sem mun sennilega segja í framtíðinni ef sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram að vera eins og hann er í dag „Ég kýs ekki sjálfstæðisflokkinn, ég kaus aldrei sjálfstæðisflokkinn og hefði aldrei kosið sjálfstæðisflokkinn“
En aðeins, og bara aðeins, ef þau mæta á kjörstað og kjósa. Kjósa nýja framtíð fyrir sig og sína…og kannski líka fyrir okkur hin sem viljum sjá Ísland rísa upp úr niðurlægingu og spillingu síðastu áratuga og taka stefnuna fram á veginn.