30 apr Er allt í himnalagi?
Nesfréttir bárust okkur Seltirningum í morgun. Í blaðinu er löng grein eftir bæjarstjóra, þar sem hún óskar bæjarbúum gleðilegs sumars. Þrátt fyrir að bjart sé í verði þessa dagana er bæjarstjóra ekki sól í sinni.
Henni misbýður að kjörnir fulltrúar og aðrir íbúar lýsi skoðunum sínum á fjármálum bæjarins. Hún segir efnislega að allt sé í stakasta lagi í fjármálum Seltjarnarness – ekkert að hjá okkur, falsfréttir, farið glöð inn í sumarið.
Þó er það svo að lunginn af tíma bæjarráðs undanfarna mánuði hefur farið í að ræða fjárhagsstöðu bæjarins. Hún er ekki góð. Bærinn hefur blætt peningum og verið tap á rekstrinum nánast hvert einasta ár síðan 2014. Uppsafnaður halli A-hluta er um 630 milljónir króna á árabilinu 2015-2019. Hægt er að skoða það á meðfylgjandi töflu. Á sama tíma hefur verið ráðist í dýrar framkvæmdir á sviði íþrótta- og öldrunarmála. Góðar framkvæmdir að mörgu leyti, þótt spyrja megi hvort þær hafi verið nauðsynlegar.
Undanfarin misseri hefur bæjarráð, bæjarstjórn og stjórnendur bæjarins þurfa verja lunganum af tíma sínum í að staga í göt á fjárhagsáætlunum bæjarins. Á meðan gefst ekki tími til að ræða hvernig við byggjum upp betra samfélag á Seltjarnarnesi; bætum umhverfið og þróum þjónustu sem svarar kröfum tímans. Á meðan kjölfestu skortir í fjármálum, er ekki hægt að horfa fram á veginn og leggja drög að betra samfélagi hér á Nesinu. Og hvað áhrif þeirrar djúpu kreppu sem við siglum nú inn í varðar, þá erum við ennþá að skoða hluti sem gerðust áður en Covid-19 kom til sögunnar, þannig að ekki léttist róðurinn á næstunni.
Nú er það þannig að samstarf innan bæjarstjórnar og bæjarráðs er afbragðsgott. Milli okkar sem erum kjörnir fulltrúar ríkir alla jafna traust og virðing og samstarf á milli okkar er ágætt. Það er verkefni okkar allra að takast á við 630 milljón króna uppsafnaðan halla og við tökum þeirri áskorun af þeirri virðingu og auðmýkt sem þarf. Það sorglega er að á meðan þessi halli myndaðist, stóð yfir mesta góðæri Íslandssögunnar. Það hefði verið fullkominn tími til að safna í sarpinn fyrir erfiðara tíma, sem nú eru skollnir á.
Það kemur því talsvert á óvart að sjá bæjarstjóra skrifa grein til bæjarbúa þar sem hún lætur eins og ekkert sé. Að allt sé í himnalagi. Þetta er annað hvort dæmi um skort á auðmýkt eða ónóga raunveruleikatengingu.
Hún veit manna best að engin fjárhagsáætlun sem hún hefur lagt fram síðustu sex ár hefur staðist. Hún veit að skammtímafjármögnun bæjarins er gerð með yfirdráttarláni. Hún veit líka að stefna flokks hennar um að Seltjarnarnes sé einhverskonar skattaparadís er gjaldþrota og veldur verulegri hættu á því að þjónustu við börn, eldri borgara, fatlaða, fólk með sérþarfir og þeirra sem glíma við fjárhagsörðugleika muni hraka. Í kjölfarið versnar líf okkar allra sem búum á Seltjarnarnesi.
Höfundur er bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi fyrir Viðreisn/Neslistann