30 apr Byggjum undir velferð með nýjum verkfærum
Samfélag okkar stendur frammi fyrir margvíslegum áskorunum á næstu misserum. Ein þeirra er að grípa viðkvæma hópa sem hafa orðið illa fyrir barðinu á aukaverkunum heimsfaraldursins. Börn og ungmenni eru í þeim hópi, en fjölmörg hafa af ólíkum ástæðum orðið undir. Sum vegna erfiðleika í námi, önnur vegna vanrækslu og enn önnur vegna óviðunandi aðstæðna á heimili. Eftirlit og utanumhald eru þættir sem bresta í ástandi þar sem öll grunnþjónusta skerðist og íþrótta- og tómstundastarf fellur niður. Við verðum áþreifanlega vör við mikilvægi þessara þátta fyrir velferð einstaklinga. Velferð er stórt og yfirgripsmikið mál, enda góð líðan og öryggi forsenda þess að við höldum áfram, af lífskrafti og vilja. Kerfin okkar mega ekki laskast í þessu árferði, við verðum að hlúa að þeim en um leið vera opin fyrir því að hugsa nýjar leiðir og nýta þær farsælu lausnir sem við höfum fundið á undanförnum vikum.
Eitt af þeim verkfærum, sem neyðin kenndi okkur að nýta betur, er tæknin. Margir hafa hræðst að bæta meiri tækni inn í krefjandi starfsumhverfi, hvort heldur horft er til skólastarfs eða almennrar stoðþjónustu við börn og ungmenni. Þó hafði hópur fagfólks þegar stokkið inn í nýjan heim og auðveldað þannig aðgengi að fagþjónustu vítt og breytt um landið. Einfaldað aðgengi að námi og þannig styrkt sitt fagumhverfi til muna og hreyft við samferðafólki.
Ég trúi því að aðstæðurnar, sem skapast hafa í heimsfaraldrinum, muni sömuleiðis hreyfa við okkur sem samfélagi til lengri tíma litið. Nú reynir á að við höldum áfram að leysa málin og bregðast við aðstæðum. Við munum sjá aukna þörf fyrir ýmis konar þjónustu þar sem börn og ungmenni þurfa aukinn stuðning til þess að taka næstu skref í lífinu. Fleiri munu þurfa á fagþjónustu að halda. Þá þjálfun, sem hefur að einhverju eða jafnvel öllu leyti fallið niður, þarf að vinna upp að nýju. Það gildir ekki síst um viðkvæma hópa eins og fötluð börn og ungmenni, en einnig um fullorðna sem hafa misst af allri félagslegri styrkingu í of langan tíma.
Þessum verkefnum þarf að sinna af krafti eins hratt og örugglega og hægt er. Nýtum tæknina og nær óendanlega möguleika hennar til fjarþjónustu til að koma hratt til hjálpar. Það er full ástæða til að óttast að bið eftir hefðbundinni þjónustu muni lengjast, en það má alls ekki gerast. Setjum aukinn kraft og aukið fjarmagn í velferð einstaklinga. Fátt er dýrmætara.
Höfundur er oddviti Garðabæjarlistans í Garðabæ.