08 jún Sveitarstjórnarráð kemur saman
Kæra Viðreisnarfólk,
Að afstöðnum sveitarstjórnarkosningum er komið að fyrsta fundi nýs sveitarstjórnarráðs sem haldinn verður 8. júní 2022 kl. 18.00 í Ármúla 42. Fyrir þau ykkar sem eruð hluti af sveitarstjórnaráði en eigið ekki heimangengt til Reykjavíkur verður fundurinn einnig á Zoom á hlekknum: https://us02web.zoom.us/j/84842586796
Sveitarstjórnarráð er samstarfsvettvangur fulltrúa Viðreisnar í sveitarstjórnum og er Viðreisn til ráðuneytis um sveitarstjórnarmál. Þar er fjallað um sameiginlega stefnumótun í málefnum sveitarfélaga í samræmi við stefnu Viðreisnar.
Í sveitarstjórnarráði eiga sæti öll sem flokksbundin eru í Viðreisn og eru aðal- og varafulltrúar í sveitarstjórnarráði eða eiga sæti í nefndum sveitarstjórna. Auk þeirra eiga framkvæmdastjóri flokksins og starfsmaður sveitarstjórnarráðs sæti í sveitarstjórnarráði. Ef þú ert kjörin aðal- eða varafulltrúi í sveitarstjórn eða ert aðalmaður í nefndum sveitarstjórna átt þú sæti í sveitarstjórnarráði og það væri gaman að sjá þig á fundinum.
Á fundinum verður kosin stjórn til næstu tveggja ára, formaður og fjórir stjórnarmenn. Þau ykkar sem tilheyra sveitarstjórnarráði og hafið áhuga á að bjóða ykkur fram til stjórnar eru beðin um að láta Svanborgu Sigmarsdóttur, verkefnastjóra sveitarstjórnarstigs Viðreisnar vita með því að senda henni póst á svanborg@vidreisn.is eða hringja í síma 8200772.
Á fundinum mun einnig fara fram umræða um nýliðnar kosningar og væntingar til starfs komandi sveitarstjórnarráðs.