29 nóv Jólabjórsmakk á Akureyri
Langar þig að smakka jólabjóra?
Veistu hvað það eru mörg brugghús í Norðausturkjördæmi? Við getum svarað þeirri spurningu!
Komdu í heimsókn til okkar á kosningaskrifstofuna föstudaginn 29. nóvember, smakkaðu gómsætar veigar og nasl. Þeir sem mæta fá tækifæri til að hita upp fyrir kosningarnar, kjósa þann jólabjór sem þeim þykir bestur og ræða við frambjóðendur um hvað sem er!
Allir hressustu og skemmtilegustu frambjóðendur Viðreisnar í Norðausturkjördæmi verða á staðnum ásamt óvæntum gestum – segjum bara að Tvíhöfði er að halda Litlu Jól! viðburðinn síðar um kvöldið á öðrum stað í bænum
Hlökkum til að sjá ykkur öll!