30 nóv Kosningakaffi – Höfuðborgarsvæðið
Laugardaginn 30. nóvember bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin í kosningakaffi í kosningamiðstöð Viðreisnar á Grensásvegi 16 í Reykjavík. Við lofum ykkur notalegri stemningu, rjúkandi heitu kaffi, ljúffengum brauðtertum, nýbökuðum pönnukökum og öllu öðru sem prýðir hið klassíska kosningakaffi.
Byrjið daginn á að kjósa og komið svo til okkar – við hlökkum til að hitta ykkur, hlusta á ykkur og fagna lýðræðinu saman. Kíkið við, spjallið við okkur og takið þátt í gleðinni sem fylgir þessum mikilvæga degi.
Hlýjar kveðjur,
Viðreisn