23 jan Aðalfundur Norðausturráðs
Stjórn Norðausturráðs boðar til aðalfundar ráðsins fimmtudaginn 23. janúar klukkan 20:30. Öll sem skráð eru í Viðreisn og hafa lögheimili í Norðausturkjördæmi eiga sæti í Norðausturráði.
Þar sem kjördæmið er stórt verður fundurinn haldinn í fjarfundi. Hlekkinn má finna hér að ofan.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins er þessi.
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar lagðir fram, staðfestir af skoðunarmönnum
3. Kosning formanns
4. Kosning fjögurra stjórnarmanna
5. Kosning tveggja varamanna
6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál.
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar lagðir fram, staðfestir af skoðunarmönnum
3. Kosning formanns
4. Kosning fjögurra stjórnarmanna
5. Kosning tveggja varamanna
6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál.
Framboð til formanns eða stjórnar skal berast á netfangið nordaustur@vidreisn. is eigi síðar en viku fyrir aðalfund, eða fimmtudaginn 16. janúar.
Með bestu kveðju,
Stjórn Norðausturráðs Viðreisnar