11 feb Aðalfundur Viðreisnar á Seltjarnarnesi
Aðalfundur Viðreisnar á Seltjarnarnesi verður haldinn miðvikudaginn 11. febrúar nk. kl 20.00 á skrifstofu Viðreisnar Suðurlandsbraut 22, Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar er:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar, staðfestir af skoðunarmönnum, lagðir fram til samþykktar
- Nýjar samþykktir félagsins, lagðar fram til staðfestingar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnar
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Ákvörðun félagsgjalda
- Önnur mál
Framboð til stjórnar og formanns Viðreisnar á Seltjarnarnesi verða að hafa borist minnst 7 dögum fyrir aðalfund eða þann 4. febrúar 2026 með netpósti á netfangið vidreisn@vidreisn.is
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á fundinum.
Stjórn Viðreisnar á Seltjarnarnesi