07 feb María Ellen nýr oddviti Viðreisnar í Kópavogi
María Ellen Steingrímsdóttir var kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi í rafrænu leiðtogaprófkjöri sem fram fór í dag. Hún mun því leiða lista Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum. Í öðru sæti lenti Pétur Björgvin Sveinsson og í því þriðja Arnar Grétarsson. Þrjú efstu sæti prófkjörsins eru bindandi fyrir uppstillingarnefnd Viðreisnar í Kópavogi.
María Ellen hlaut 240 atkvæði í fyrsta sæti listans. Pétur Björgvin hlaut 272 atkvæði í 1.-2. sæti og Arnar hlaut 319 atkvæði í 1.-3. sæti.
„Ég er mjög þakklát fyrir það traust sem Viðreisnarfólk í Kópavogi hefur sýnt mér og einstaklega þakklát samframbjóðendum mínum fyrir drengilega og góða baráttu,“ segir María Ellen. „Við erum tilbúin til að sýna að við getum staðið fyrir nýrri sýn fyrir Kópavog í vor, með sterkum lista og málefni, þar sem íbúar eru settir í fyrsta sæti.“
Úrslitin voru kynnt á fjölmennri kosningavöku á 27 Mathús & bar, Kópavogi í kvöld.
Á kjörskrá voru 823 og var kjörsókn 76%.
1 atkvæði var autt
Gild atkvæði fóru sem hér segir:
| Nafn | 1. sæti | 2. sæti | Atkvæði 1-2 sæti | 3. sæti | Atkvæði 1-3 sæti |
| María Ellen Steingrímsdóttir | 240 | 59 | 299 | 75 | 374 |
| Pétur Björgvin Sveinsson | 225 | 47 | 272 | 64 | 336 |
| Arnar Grétarsson | 29 | 212 | 241 | 78 | 319 |
| Jóhanna Pálsdóttir | 50 | 155 | 205 | 78 | 283 |
| Ísak Leon Júlíusson | 16 | 21 | 37 | 114 | 151 |
| Birgir Örn Guðjónsson | 63 | 20 | 83 | 32 | 115 |
| Ester Halldórsdóttir | 5 | 27 | 32 | 72 | 104 |