13 feb Viðreisn nýtt framboð í Múlaþingi
Á félagsfundi Viðreisnar í Múlaþingi í vikunni var sú ákvörðun tekin að Viðreisn myndi bjóða fram undir eigin nafni í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta er fyrsta skipti sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu.
Ákveðið var að stillt yrði upp á lista og var kosið í uppstillingarnefnd sem mun ræða við mögulega frambjóðendur á næstu dögum.
Uppstillingarnefnd skipa Guðmundur Þór Þóðarson, Heiða Ingimarsdóttir og Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Þá er Ingvar Þóroddsson, þingmaður kjördæmisins varamaður nefndarinnar.
„Eftir samtöl við fólk hér í sveitarfélaginu heyrum við skýrt ákall um ferska sýn og breyttar áherslur á svæðinu,“ segir Heiða Ingimarsdóttir, formaður Viðreisnar í Múlaþingi. „Það er mikill hugur í fólki og við erum sannfærð um að áherslur Viðreisnar um almannahagsmuni, ábyrgan rekstur sveitarfélagsins og ekki síst að halda vel utan um börnin okkar og ungmenni eiga eftir að ná góðum hljómgrunni kjósenda hér.”
Áhugasöm um að taka sæti á lista eða þau sem vilja frekari upplýsingar eru hvött til þess að senda tölvupóst á mulathing@vidreisn.is eða setja sig í samband við uppstillingarnefnd.
„ Við erum alltaf opin fyrir nýju og góðu fólki í málefnavinnu og annað starf fyrir kosningarnar,“ segir Heiða.
Áður hefur Viðreisn tilkynnt framboð í eigin nafni í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, Árborg, Reykjanesbæ, Ísafjarðarbæ og Akureyri.