04 mar Vinnuhópur um málefni barna: Farsæld barna – hvað þarf til?
Fyrsti fundur vinnuhóps um málefni barna verður haldinn miðvikudaginn 4. mars kl. 20.00.
Á þessum fundi mun Birgir Örn Guðjónsson, deildarstjóri Blönduhlíðar í Skálatúni, Mosfellsbæ ræða um farsæld barna og hvað þurfi til að farsældarlögin virki sem skyldi.
Í seinni hluta fundarins munum við svo ræða þennan nýstofnaða vinnuhóp.
Vinnuhópur um málefni barna fundar mánaðarlega undir stjórn Láru Hrund Oddnýjardóttur Kaaber.
Allt Viðreisnarfólk getur skráð sig í hópinn hér að neðan.
Boðið er upp á fjarfundarhlekk sem sendur verður þeim sem skrá sig í hópinn.