10 mar Aðalfundur og framboðslisti Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur
Aðalfundur Viðreisnar á Suðurnesjum verður haldinn þriðjudaginn 10. mars kl. 19:30 á Park- inn hótel, Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ. Á fundinum verður framboðslisti Viðreisnar í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar kynntur og lagður fram til samþykktar.
Dagskrá aðalfundar er:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar, staðfestir af skoðunarmönnum, lagðir fram til samþykktar
- Breytingar á samþykktum félagsins (ef við á), lagðar fram til staðfestingar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnar
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Ákvörðun félagsgjalda
- Önnur mál
- Framboðslisti Viðreisnar í Reykjanesbæ lagður fram til samþykktar
Framboð til stjórnar og formanns Viðreisnar á Suðurnesjum verða að hafa borist minnst 7 dögum fyrir aðalfund, eða í síðasta lagi 3. mars 2026, með því að senda tölvupóst á sudurnes@vidreisn.is .
Við hvetjum öll til að mæta og hlökkum til að sjá sem flest á fundinum.
Stjórn Viðreisnar á Suðurnesjum