05 mar Listi Viðreisnar í Reykjavík lagður fram til samþykktar
Viðreisn í Reykjavík boðar til félagsfundar þann 5. mars næstkomandi klukkan 17:00 í húsnæði Viðreisnar að Suðurlandsbraut 22.
Dagskrá fundarins:
– Uppstillingarnefnd kynnir framboðslista Viðreisnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026
– Framboðslisti borinn fram til samþykktar viðstaddra félagsmanna.
– Önnur mál.
Strax á eftir er ferðinni heitið á Flóruna Café þar sem listinn verður gerður opinber með pompi og prakt klukkan 18:00. Við hvetjum ykkur öll til að koma með okkur á Flóruna og taka með ykkur gesti. Sýnum í verki hvað það er stór hópur að baki Viðreisn í Reykjavík og að við erum tilbúin í kröftuga og jákvæða kosningabaráttu.
Við minnum einnig á aðalfund Viðreisnar í Reykjavík á morgun 1.mars kl 13:00
Allir félagsmenn Viðreisnar í Reykjavík eru velkomnir. Hlökkum til þess að sjá ykkur sem flest.
Stjórn Viðreisnar í Reykjavík.