Gylfi leiðir lista Viðreisnar í Ísafjarðarbæ

Viðreisn, sem býður nú fram í fyrsta skipti í Ísafjarðarbæ, hefur samþykkt lista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. 

Gylfi Ólafsson, sem verið hefur formaður bæjarráðs þetta kjörtímabil leiðir listann. Sif Huld Albertsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Sjótækni er í öðru sæti og Magnús Einar Magnússon skrifstofustjóri, stálsmíðameistari og bæjarfulltrúi er í þriðja. 

„Þetta kjörtímabil hefur litast af mikilli áherslu á að koma fjármálum sveitarfélagsins á þokkalegt ról, bæta húsnæði og íþróttaaðstöðu sveitarfélagsins og hugsa um ýmis atvinnumál. Komandi kjörtímabil þarf einkennast af áherslu á skólamál á öllum skólastigum, átak í skipulagsmálum og að koma húsbyggingum á betra skrið,“ segir Gylfi Ólafsson oddviti. 

Listi Viðreisnar í Ísafjarðarbæ í heild

  1. Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs 
  2. Sif Huld Albertsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri
  3. Magnús Einar Magnússon, skrifstofustjóri og stálsmíðameistari
  4. Arnheiður Steinþórsdóttir, sagnfræðingur og bókavörður
  5. Valur Richter, pípari, húsasmiður og meindýraeyðir 
  6. Halldóra Norðdahl, verslunareigandi
  7. Sigþór Snorrason, grunnskólakennari
  8. Hanna Gerður Jónsdóttir, hópstjóri á leikskóla
  9. Marcel Knop, stuðningsfulltrúi og kennaranemi
  10. Monika Maria Wielgosz, lögfræðingur
  11. Einar Geir Jónasson, stjórnmálafræðinemi 
  12. Júlía Ósk Bjarnadóttir, leikskólakennari
  13. Hörður Christian Newman Gunnarsson, þjónustufulltrúi
  14. Guðrún Helga Sigurðardóttir, nemi
  15. Haukur Harðarson, vaktstjóri
  16. Auður Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur
  17. Guðmundur M Kristjánsson, fyrrverandi hafnarstjóri
  18. Sigrún Camilla Halldórsdóttir, formaður félags eldri borgara