07 apr Listi Austurlistans og Viðreisnar í Múlaþingi samþykktur
Sameiginlegur framboðslisti Viðreisnar og Austurlistans í Múlaþingi hefur verið staðfestur á félagsfundi. Hólmfríður Rut Einarsdóttir, leiðir listann en Eyþór Stefánsson, sveitarstjórnarfulltrúi Austurlistans, verður í öðru sæti.
Í samtali við Austurfrétt segir Hólmfríður samhljóm í málefnum hafa leitt til sameiginlegs framboðs. „Við erum sterkari saman og teljum að það sé betra fyrir sveitarfélagið. Það er mikill samhljómur í málefnum og málefnavinnu.”Hún segir að samtöl sem hafi átt sér stað hafi undið upp á sig þegar ljóst var að samhljómur var um áherslur framboðsins. Að lokum hafi allir verið sammála um niðurstöðuna. „Þetta er listi skipaður fjölbreyttu og öflugu fólki sem ég hlakka til að vinna með. Við ætlum að setja börn og ungmenni í forgrunn með því að styrkja grunnstoðirnar og næsta kjörtímabil þarf einnig að einkennast af styrkingu atvinnulífs á svæðinu,“ segir Hólmfríður
Framboðslisti Austurlistans og Viðreisnar í Múlaþingi 2026:
1. Hólmfríður Rut Einarsdóttir, markaðs- og samskiptafræðingur, Egilsstöðum
2. Eyþór Stefánsson sveitarstjórnarfulltrúi, Borgarfirði
3. Urður Arna Ómarsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, Seyðisfirði
4. Jóhann Hjalti Þorsteinsson, gjaldkeri og innheimtufulltrúi, Egilsstöðum
5. Hrafnhildur Margrét Vídalín Áslaugardóttir kennaranemi, Egilsstöðum
6. Páll Baldursson verkefnastjóri, Egilsstöðum
7. Kristjana Ditta Sigurðardóttir ritari, Fellabæ
8. Ævar Orri Eðvaldsson fiskeldisfræðingur, Djúpavogi
9. Hanna Lára Ólafsdóttir, Seyðisfirði
10. Arngrímur Viðar Ásgeirsson framkvæmdastjóri, Egilsstöðum
11. Ásdís Hafrún Benediktsdóttir bókari, Djúpavogi
12. Grímur Ólafsson verkamaður, Seyðisfirði
13. Tinna Jóhanna Magnusson grunnskólakennari, Borgarfirði
14. Daði Sigfússon, forstöðumaður íþróttamiðstöðvar, Seyðisfirði
15. Katrín Alfa Snorradóttir, þýðandi og prófarkalesari, Egilsstöðum
16. Aðalsteinn Ásmundarson, vél- og húsasmiður, Egilsstöðum
17. Irena Boyko, sjálfstætt starfandi naglafræðingur, Egilsstöðum
18. Andrew John Morgan, leiðbeinandi á leikskóla, Fellabæ
19. Ragnhildur Billa Árnadóttir sjúkraliði, Seyðisfirði
20. Hafliði Sævarsson bóndi, Djúpavogi
21. Baldur Pálsson Austurlandsgoði, Fellabæ
22. Heiða Ingimarsdóttir, almannatengill og varaþingmaður, Fellabæ