28 apr Viðreisn setur börn í forgang
Þegar það kemur að þjónustu við börn og fjölskyldur þá skarar Mosfellsbær fram úr í samanburði við mörg sveitarfélög. Viðreisn hefur setið í meirihluta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar undanfarin fjögur ár og stutt við verkefnið „Börnin okkar”.
Farið var í 27 aðgerðir með áherslu á almennar forvarnir, snemmtækrar íhlutunar og styrkingar barnaverndarstarfs. Einn af þessum liðum er aukið aðgengi ungmenna að sálfræðiþjónustu og ráðgjöf til foreldra. Á kjörtímabilinu hefur starfsumhverfi leikskóla verið bætt, þar sem „Mosfellska leiðin” var farin, án meiri kostnaðar eða verulegrar þjónustuskerðingar fyrir foreldra. Bætt starfsumhverfi leikskólanna hefur leitt af sér fjölgun fagfólks í skólunum og færri veikindadaga starfsmanna. Þessar aðgerðir leiða til meiri vellíðunar barna og jákvæðra áhrifa á fjölskyldur í Mosfellsbæ.
Öryggi leikskólabarna
Öryggi leikskólabarna hefur verið í brennidepli undanfarið og hafa allt of mörg tilfelli komið fram þar sem grunur er um ofbeldi gagnvart yngstu börnum landsins. Þegar svona mál koma upp skiptir máli að hafa skýra verkferla og áfallamiðaða nálgun fyrir barnið, foreldra þess og starfsfólk skólans. Undirritaðar hafa boðið sig fram fyrir hönd Viðreisnar í Mosfellsbæ og vilja leggja sérstaka áherslu og öryggi og vellíðan barna. Listinn okkar samanstendur af fólki með áratuga reynslu af áfallamiðaðri vinnu, bæði með börnum og fullorðnum.
Við viljum halda áfram því góða starfi sem meirihlutinn í Mosfellsbæ hefur unnið að síðastliðin fjögur og ár og leggja okkar af mörkum við að gera bæinn okkar enn öruggari fyrir börn og fjölskyldur, með aðgerðum sem virka.
Til þess þurfum við atkvæði ykkar í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Þið getið treyst okkur fyrir krefjandi verkefnum því Viðreisn lætur verkin tala.
Elín Anna Gísladóttir 3. sæti á lista Viðreisnar í Mosfellsbæ og fulltrúi Viðreisnar í fræðslunefnd Mosfellsbæjar 2019-2026 og Berglind Robertson Grétarsdóttir 4. sæti á lista Viðreisnar í Mosfellsbæ, leikskólastjóri og sjálfboðaliði í áfallateymi RKÍ.