Ísafj

Viðreisn í Ísafjarðarbæ klippir á borðann

Stefnuskrá Viðreisnar í Ísafjarðarbæ er formlega komin út og er aðgengileg á vefnum vidreisn.is/isafjardarbaer. Flokkurinn leggur áherslu á skólamál, jákvæða samvinnu og reynslumikið fólk í komandi kosningum. Það sé sannarlega vor fyrir vestan og því mikilvægt að halda vel á spöðunum. Þar skipti máli að hafa fjármálin í lagi.

„Við erum búin að lækka skuldir bæjarins gríðarlega á kjörtímabilinu og þá myndast smám saman tækifæri til að gera meira skemmtilegt og gagnlegt. Stefnuskráin er blanda af stórum og litlum málum. Sumt eru pælingar sem þarf að skoða betur og annað getum við lofað að verði gert“ segir Gylfi Ólafsson, oddviti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ.

„Það skiptir auðvitað líka máli að það sé öflugur hópur í bæjarstjórn og öflugur bæjarstjóri til þess að eitthvað verði úr verki og til að taka á því sem kemur upp í rekstri bæjarins“ bætir hann við.

Stefnuskráin er yfirgripsmikil og nær til helstu málaflokka sveitarfélagsins. Auk þess að leggja áherslu á skólamál vill Viðreisn stuðla að áframhaldandi uppbyggingu í Ísafjarðarbæ, auka viðhald á eignum bæjarins, huga að húsnæðismálum fyrir eldri borgara, bæta almenningssamgöngur, fjölga leikskólakennurum og svo lengi mætti telja.

Að lokum má nefna mál sem flokkurinn setur fram en það er að breyta léni sveitarfélagsins úr isafjordur.is í isafjardarbaer.is. Það má teljast tímabært 30 árum eftir sameiningu segir í tilkynningu frá Viðreisn.

Stefnuna í heild sinni má lesa hér: https://vidreisn.is/isafjardarbaer/stefnan/.