07 maí Umhverfið endurspeglar okkur
Ég hef starfað sem formaður umhverfisnefndar um það bil sl eitt og hálft ár. Það var alveg nýtt en spennandi verkefni fyrir mér, enda hafa umhverfismálin alltaf verið mér sérlega hugleiki.
Hátt í ár saumuðum við eigendur Klæðakots taupoka úr gömlum sængurverum, bolum, gardínum og slíku sem við gáfum öllum viðskiptavinum. Og ég man vel þegar við fengum flokkunar tunnurnar, ég sat með ruslaföturnar fyrir framan mig og fór í gegnum allt sorpið mitt og flokkað í smáatriðum. Plokkaði blast af pappír, ál af plasti og svo framvegis. Já ég hef alltaf verið svolítið ýkt, en mér fannst þetta raunverulega spennandi og ánægjulegt, og finnst enn, þó mesta spennan sé nú kanski löngu liðin. Ég er líka svo stolt af því hvað Ísafjarðarbær er framarlega í þessum málum.
Mér finnst Ísafjarðarbær fallegasti staður sem ég hef komið á og vil leggja mitt af mörkum til að ekkert skyggi á það. Það er yndislegt að ganga um bæ þar sem vel er hugsað um umhverfið. Þar sem stígar eru snyrtilegir, leikvellir lifandi, verslanir iðandi og hús og lóðir bera þess merki að fólk leggur sig fram. En slíkt umhverfi verður ekki til af sjálfu sér. Það er afrakstur sameiginlegrar ábyrgðar og samvinnu.
Samfélagsábyrgð byrjar hjá okkur sjálfum
Í umræðu um umhverfismál er auðvelt að líta fyrst til kerfisins og sveitarfélagsins. „Bærinn á að sjá um þetta.” En það er ekki nóg. Þó allir starfsmenn bæjarins stæðu á haus í umhverfismálum allan sólarhringinn dygði það ekki til. Þetta er verkefni samfélagsins alls. Samfélagsábyrgð byrjar hjá okkur sjálfum, í daglegum venjum og litlum ákvörðunum sem safnast upp og hafa raunveruleg áhrif.
Sorpmálin eru gott dæmi. Rétt flokkun er ekki bara formsatriði heldur raunverulegt framlag til betri nýtingar auðlinda, minni sóunar og lægri kostnaðar fyrir sveitarfélagið. Þar skiptir máli að aðgengi og fræðsla sé góð en líka að við tökum ábyrgð á eigin úrgangi og neyslu.
Það er líka skýr stefna hjá Viðreisn að halda áfram að leita leiða til að draga úr magni sorps sem fer til urðunar, með aðhaldi, fræðslu og nýjum lausnum.
Nánasta umhverfi okkar skiptir ekki síður máli. Lóðir, garðar og nærliggjandi svæði eru hluti af heildarmynd bæjarins. Vel hirt lóð hefur áhrif langt út fyrir eigin girðingu – hún eykur vellíðan og styrkir ímynd hverfisins. Á sama tíma getur vanræksla haft áhrif á fleiri en eigandann. Illgresi dreifir sér, umhirða annarra þyngist og sóðaleg lóð skyggir á heildarmynd götunnar. Sama á við gróður við gangstéttir – oft þarf ekki mikla fyrirhöfn til að laga það sem fer í taugarnar á okkur daglega.
Hvað ætlar Viðreisn að gera?
Og nú er að koma þetta dásamlega vor, þar sem gróðurinn vaknar og allt grænkar og blómstrar. Fyrirkomulag fyrri ára, þar sem vinnuskólinn sá um snyrtingu bæjarins er úr sér gengið og við þurfum að skoða nýjar leiðir hvernig við getum haldið götunum og gangstéttunum hreinum, haldið gróðri í skefjum en ræktarlegum þar sem við á og hlúð vel að útisvæðum í öllum kjörnum. Það er vinna sem Viðreisn vill ráðast í.
Það að íbúar geti tekið svæði í fóstur er líka frábært framtak sem sýnir hvað hægt er að gera þegar vilji er fyrir hendi. Slík verkefni skapa tengsl, ábyrgð og stolta tilfinningu fyrir eigin nærumhverfi.
En ábyrgðin er ekki aðeins okkar sem íbúa. Sveitarfélagið þarf að standa sterkt í sínu hlutverki. Viðhald gangstétta og stíga, umhirða blómabeða og ástand leikvalla skiptir miklu máli. Þar þarf að vera metnaður, skýr sýn og reglulegt viðhald því bærinn setur tóninn.
Viðreisn leggur áherslu á að bæta ásýnd sveitarfélagsins markvisst, ljúka nauðsynlegum framkvæmdum eins og í fráveitumálum og efla útivistarsvæði, bæði fyrir börn og fullorðna.
Síðasta haust var gerð úttekt á leiksvæðum sveitarfélagsins og þar kom í ljós að víða er þörf á úrbótum. Það er verkefni sem þarf að taka föstum tökum og ráðast í án tafar.
Gerum þetta saman
Á endanum snýst þetta ekki um „við“ og „bærinn“, heldur okkur öll saman. Umhverfið okkar er sameiginlegt verkefni og sameiginleg ábyrgð. Flokkum sorpið, tökum til í kringum okkur, plokkum rusl og hlúum að nærumhverfinu. Styðjum við heimabyggðina og tökum þátt í lífinu í bænum.
Ef við viljum búa í fallegum, lifandi og aðlaðandi bæ, þá þurfum við öll að leggja okkar af mörkum, hvert á sinn hátt.
Ég vil leggja mitt af mörkum til þess með Viðreisn. X-C
Halldóra Björk Norðdahl
Skipar 6. sæti á lista Viðreisnar í Ísafjarðarbæ