Það þarf heilt þorp til að ala upp barn

Nýverið sat ég opin fund um menntastefnu Ísafjarðarbæjar. Þar var komið saman fólk af öllum skólastigum sveitarfélagsins og úr varð mjög áhugavert og verðmætt samtal, og meðal annars sem kom út úr samtalinu var þörfin fyrir að samvinna heimila og skóla væru betri.

Ég starfa sem kennari við Grunnskóla Ísafjarðar og er á mínu öðru ári í starfi. Það sem hefur gagnast mér mest eru samskipti við foreldra. Ég tel næsta víst að foreldrar vilji meiri upplýsingar en ekki, og það sama á við um okkur sem samfélag þegar kemur að börnum okkar.

Því miður hefur heimilunum of oft verið stillt upp gegn skólastofnunum. Heimilin eiga að gera þetta, skólarnir eiga að gera hitt. Það sem gleymist hinsvegar oft að það sem verður útundan í þannig umræðu og hegðun, er þessi dýrmæta auðlind sem við eigum saman í börnunum okkar.

Sjáiði til, þetta er nefnilega ekki eitt á móti öðru, ekki ef vel á að gefa.

Það er alveg sama hvar potti er stungið niður, ef það á að ná árangri, þá þurfa samskipti og samvinna að ganga saman hönd í hönd. Og þetta þarf að virka vel.

Þeir sem þekkja börnin best eru foreldrarnir, ég sem kennari verð því að vera í virkri samvinnu og samtali við börnin um hvernig gangi. Kennarar eru líka þeir sem sjá börnin í félagslegu umhverfi og eru fagfólk í því að meta námsframvindu barnanna okkar, ég sem foreldri verð því að vera í samskiptum og samvinnu við kennara barnanna minna svo að ég viti stöðu og hvað ég geti gert heima fyrir til að stuðla að árangri og vellíðan þeirra.

Keðja sem þarf að virka

Sveitarfélög þurfa að taka við börnum um leið og fæðingarorlofi lýkur. Og þá tekur við keðja sem þarf að virka. Frá vel mönnuðum leikskólum, upp í metnaðarfulla grunnskóla. Frá fjölbreyttu íþróttastarfi yfir í félagsmiðstöðvar sem henta mismunandi aldurshópum, þar sem þörfum allra er mætt af fagmennsku og inngilding er í fyrirrúmi.

Í okkar heimabæ er aragrúi af mjög færu og metnaðarfullu fagfólki í skólastarfinu. Menntastefna bæjarins þarf að endurspegla það og sýna jafn mikinn metnað. Við þurfum að móta okkur skýra stefnu, ekki alltaf að bíða og sjá hvað hinir ætla að gera.

Við erum leiðandi á svo marga vegu, ég vil sjá okkur vera leiðandi í menntamálum líka. Það gerist ekki nema við séum samstíga, að við séum óhrædd við að fara nýjar leiðir. Möguleikarnir eru miklir, auðlindin sem við eigum í börnunum okkar er gríðarlega verðmæt, en viðkvæm á sama tíma.

Við getum ekki beðið eftir og ætlað að bregðast við of seint. Framtíðin er í húfi þegar kemur að þessum málum.

Sigþór Snorrason
Skipar 7. sæti á lista Viðreisnar í Ísafjarðarbæ