- This event has passed.
Kosningavaka Viðreisnar í Reykjanesbæ
16. maí kl. 20:00 - 17. maí kl. 01:30

Viðreisn í Reykjanesbæ blæs til kosningavöku á kosningamiðstöð sinni að Tjarnargötu 7 í Keflavík. Húsið opnar klukkan 20:00 og öll eru hjartanlega velkomin.
Eftir kröftuga og skemmtilega kosningabaráttu ætlum við að koma saman, eiga ánægjulega stund og fylgjast spennt með þegar fyrstu tölur detta inn!
Við hlökkum mikið til að ræða málin og fagna með ykkur öllum.
*ATH. myndir og myndbönd verða teknar á viðburðinum sem gætu verið notaðar á okkar miðlum.