Varmá til framtíðar

Í dag erum við komin á mikilvægan stað í uppbyggingu Varmársvæðisins. Bæjarráð hefur samþykkt að hefja samningaviðræður við þann aðila sem fékk hæstu einkunn í samkeppnisviðræðum um nýja þjónustu- og aðkomubyggingu við Íþróttamiðstöðina að Varmá. Þetta er stórt skref fyrir Mosfellsbæ og niðurstaða markvissrar vinnu meirihluta Viðreisnar, Samfylkingar og Framsóknar. 

Nú erum við að sjá árangurinn af því að vinna verkefnið af ábyrgð, hlusta á samfélagið og byggja ákvarðanir á faglegum grunni.

Verkefni sem þurfti að endurhugsa

Því hefur verið haldið fram í kosningabaráttunni að meirihlutinn hafi ekkert gert í þessu máli. Sú gagnrýni stenst einfaldlega ekki skoðun.

Þegar við tókum við árið 2022 lá fyrir að búið hafði verið að bjóða út þjónustu- og aðkomubyggingu við Varmá. Engin tilboð bárust þó í framkvæmdina. Það sýndi að forsendur verkefnisins stóðust ekki.

Í stað þess að halda áfram óbreytt var ákveðið að staldra við og endurmeta verkefnið í heild sinni. Fljótlega kom í ljós að fyrirhuguð bygging uppfyllti ekki að fullu þær þarfir sem íþróttastarfið, skólasamfélagið og ört vaxandi samfélag Mosfellsbæjar kalla eftir til framtíðar.

Viðreisn leggur áherslu á vandaðar og ábyrgar ákvarðanir. Það er ábyrg stjórnsýsla að staldra við þegar forsendur standast ekki, fara vel með almannafé og tryggja að fjárfest sé í lausnum sem endast til framtíðar, ekki í skammtímalausnum sem þarf að endurskoða eftir örfá ár.

Byggt á raunverulegum þörfum Mosfellinga

Þess vegna var farið í umfangsmikla þarfagreiningu og samráð við hagaðila. Haldnir voru fjölmargir fundir sérstaklega var leitað til barna og ungmenna, enda mikilvægt að rödd þeirra heyrist þegar verið er að móta framtíðaraðstöðu fyrir samfélagið.

Niðurstaðan var skýr: Mosfellingar vilja metnaðarfulla framtíðaraðstöðu sem stenst kröfur næstu áratuga. 

Við höfum ekki setið auðum höndum

Á meðan þessari vinnu hefur staðið hefur jafnframt verið ráðist í mikilvægar framkvæmdir á Varmársvæðinu. Gervigrasvöllurinn hefur verið endurnýjaður, styrktarþjálfunaraðstaða byggð upp og aðalvöllurinn endurbyggður með fyrsta flokks lýsingu. Þá er félagsaðstaða nú í lokafrágangi.

Uppbyggingin á Varmársvæðinu hefur því verið bæði sýnileg og markviss, þrátt fyrir að stærsta verkefnið hafi þurft meiri undirbúning.

Framtíðarsýn að verða að veruleika

Nú erum við að sjá árangurinn af þessari vinnu. Framundan er uppbygging aðstöðu sem mun styrkja íþróttastarf, bæta upplifun fjölskyldna og skapa samfélaginu aðstöðu sem Mosfellingar geta verið stoltir af til framtíðar. Næst á dagskrá er svo að leysa verkefnið að fara í stúkuna. 

Við erum ekki að byggja fyrir næstu kosningar. Við erum að byggja fyrir næstu kynslóðir.

Elín Anna Gísladóttir 3. sæti á lista Viðreisnar

 

Greinin birtist fyrst í Mosfelling, 14. maí 2026