10 jún Landsþing Uppreisnar – ný stjórn kjörin
Landsþing Uppreisnar var haldið þann 5. og 6. júní. Þetta var í fyrsta skipti sem landsþingið var haldið yfir tvo daga.
Ný framkvæmdastjórn var einnig kjörin. Sverrir Páll Einarsson, laganemi, hlaut endurkjör sem formaður Uppreisnar, en hann hefur sinnt embættinu síðastliðið ár. María Malmquist var kosin varaformaður. Einnig hluti þau Arnar Steinn Þórarinsson, Jana Guðrún Jahzara, Ragnheiður Dóra Hallveigardóttir Jónsdóttir, Steinar Logi Hafsteinsson og Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppè kjör sem meðstjórnendur.
Uppreisnarverðlaunin voru veitt en þau eru veitt sem þakklætisvottur í garð þeirra sem hafa skarað fram úr í markverðu og óeigingjörnu starfi í þágu frjálslyndis og almannahagsmuna.
Ungir Evrópusinnar hlutu verðlaunin að þessu sinni en var það mat framkvæmdastjórnar Uppreisnar að samtökin hafi skarað fram úr í að sporna gegn upplýsingaóreiðu og stuðla að upplýstri, góðri og málefnalegri umræðu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið.
Óðinn Freyr Baldursson, formaður félagsins, tók við verðlaununum fyrir hönd Ungra Evrópusinna og lagði þá áherslu á þetta væri stærsta hagsmunmál framtíðarinnar og hvatti þjóðina til að hugsa stórt.

Sverrir Páll Einarsson, formaður Uppreisnar, sagði í sínu ávarpi á þinginu að komandi kosningabarátta sé sennilega sú mikilvægasta í lengri tíð og þakkaði Ungum Evrópusinnum fyrir það góða starf sem þau hafa unnið.
Á þinginu var samþykkt stjórnmálaályktun Uppreisnar. Hana er hægt að lesa hér.