- This event has passed.
Á trúnó með Jóni Gnarr
7. maí kl. 19:30 - 22:00
Viðreisn vill að samfélagið taki andlega heilsu alvarlega og setji hana í forgang. Húmor getur hjálpað okkur við að takast á við áskoranir og hvað er betra en að gera það í góðum félagsskap?
Nú gefst einstakt tækifæri til að eiga kvöldstund með Jóni Gnarr í kosningamiðstöðinni okkar þann 7. maí kl. 19:30 og ykkur öllum er boðið.
Jón mun taka okkur með í persónulegt ferðalag, frá gríni og karakterum yfir í pólitíkina og þau mál sem hann hefur lagt áherslu á og barist fyrir á Alþingi. Hann segir frá því hvernig grín verður til, hvað gerist bakvið tjöldin, hvernig karakterar fæðast og hvernig þetta hófst allt saman.
Sem sagt opið spjall þar sem húmor og alvara mætast á mannamáli.
Frábært tækifæri til að hlusta, hlæja og kynnast betur.
Bjór og léttar veitingar í boði.
Öll velkomin, sjáumst á trúnó!