Aðalfundur og framboðslisti Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur

Aðalfundur og framboðslisti Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur

Hvenær

10/03    
19:30

Hvar

Park Inn Reykjanesbæ
Hafnargata 57, 230 Reykjanesbær

Event Type

Aðalfundur Viðreisnar á Suðurnesjum verður haldinn þriðjudaginn 10. mars kl. 19:30 á Park- inn hótel, Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ. Á fundinum verður framboðslisti Viðreisnar í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar kynntur og lagður fram til samþykktar.

Dagskrá aðalfundar er:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar, staðfestir af skoðunarmönnum, lagðir fram til samþykktar
  4. Breytingar á samþykktum félagsins (ef við á), lagðar fram til staðfestingar
  5. Kosning formanns
  6. Kosning stjórnar
  7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  8. Ákvörðun félagsgjalda
  9. Önnur mál
  10. Framboðslisti Viðreisnar í Reykjanesbæ lagður fram til samþykktar

 

Framboð til stjórnar og formanns Viðreisnar á Suðurnesjum verða að hafa borist minnst 7 dögum fyrir aðalfund, eða í síðasta lagi 3. mars 2026, með því að senda tölvupóst á sudurnes@vidreisn.is .

Við hvetjum öll til að mæta og hlökkum til að sjá sem flest á fundinum.

Stjórn Viðreisnar á Suðurnesjum