04 mar Aðalfundur Viðreisnar í Garðabæ
Stjórn Viðreisnar í Garðabæ boðar til aðalfundar miðvikudaginn 4. mars kl. 20 Sveinatungu í Garðabæ.
Á fundinum mun framboðslisti Viðreisnar í Garðabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar kynntur og lagður fram til samþykktar.
Dagskrá aðalfundar er:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Framboðslisti Viðreisnar í Hafnarfirði lagður fram til samþykktar
3. Skýrsla stjórnar lögð fram
4. Reikningar, staðfestir af skoðunarmönnum, lagðir fram til samþykktar
5. Breytingar á samþykktum félagsins (ef við á), lagðar fram til staðfestingar
6. Kosning formanns
7. Kosning stjórnar
8. Kosning skoðunarmanna reikninga
9. Ákvörðun félagsgjalda
10. Önnur mál
Framboð til stjórnar og formanns Viðreisnar í Garðabæjar verða að hafa borist minnst 7 dögum fyrir aðalfund, eða í síðasta lagi 25. febrúar 2026, með því að senda tölvupóst á gardabaer@vidreisn.is
Við hvetjum öll til að mæta og hlökkum til að sjá sem flest á fundinum.
Stjórn Viðreisnar í Garðabæ