03 mar Aðalfundur Viðreisnar í Hafnarfirði
Aðalfundur Viðreisnar í Hafnarfirði verður haldinn þriðjudaginn 3. mars kl. 20 í sal Kiwanis, Helluhrauni 22 Hafnarfirði. Á fundinum verður framboðslisti Viðreisnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar kynntur og lagður fram til samþykktar.
Dagskrá aðalfundar er:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Framboðslisti Viðreisnar í Hafnarfirði lagður fram til samþykktar
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar, staðfestir af skoðunarmönnum, lagðir fram til samþykktar
- Breytingar á samþykktum félagsins (ef við á), lagðar fram til staðfestingar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnar
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Ákvörðun félagsgjalda
- Önnur mál
Framboð til stjórnar og formanns Viðreisnar í Hafnarfirði verða að hafa borist minnst 7 dögum fyrir aðalfund, eða í síðasta lagi 24. febrúar 2026, með því að senda tölvupóst á hafnarfjordur@vidreisn.is .
Við hvetjum öll til að mæta og hlökkum til að sjá sem flest á fundinum.
Stjórn Viðreisnar Í Hafnarfirði