Akureyri: Félagsfundur- Kosning uppstillingarnefndar

Akureyri: Félagsfundur- Kosning uppstillingarnefndar

Hvenær

12/01    
18:00

Hvar

Eining - Iðja
Skipagata 14, Akureyri

Event Type

Viðreisn á Akureyri boðar til félagsfundar þar sem kosið verður í uppstillingarnefnd þann 12. janúar næstkomandi klukkan 18:00 í sal Einingar-Iðju í Alþýðuhúsinu við Skipagötu 14.
Opnað hefur verið fyrir framboð til uppstillingarnefndar og rennur framboðsfrestur út kl 12:00 þann 12. janúar næstkomandi. Kosnir verða 3 aðalmenn og 2 til vara.
Framboðstilkynningar skulu berast á netfangið akureyri@vidreisn.is. Kosningarétt hafa allir skráðir félagar í Viðreisn.
Dagskrá fundarins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Kosning uppstillingarnefndar
3. Önnur mál
Stjórn Viðreisnar á Akureyri hvetur alla þá sem áhuga hafa á að starfa í uppstillingarnefnd að bjóða sig fram og taka þátt í starfi félagsins. Heitt verður á könnunni!