- This event has passed.
Hvað liggur íbúum í Urriðaholti á hjarta?
6. maí kl. 19:00 - 21:00
Við í Viðreisn í Garðabæ ætlum að taka á móti ykkur á Dæinn næstkomandi miðvikudagskvöld, 6. maí, frá kl. 19:00 til 22:00.
Þetta er frábært tækifæri til að hitta frambjóðendur Viðreisnar í Garðabæ, skiptast á skoðunum og ræða það sem skiptir íbúa í Urriðaholti máli. Við viljum heyra ykkar hugmyndir, óskir, þarfir og sýn á framtíð Garðabæjar og framtíð ykkar nærumhverfis.
Við sjáum til þess að stemmingin verði góð – drykkir í boði meðan birgðir endast.
Endilega kíkið við og takið spjallið með okkur.
Við hlökkum til að hitta ykkur!