28 feb Listi Viðreisnar í Mosfellsbæ kynntur
Viðreisn í Mosfellsbæ boðar til félagsfundar þann 28. febrúar næstkomandi klukkan 10:00 í húsnæði Viðreisnar að Suðurlandsbraut 22.
Dagskrá fundarins:
-
Uppstillingarnefnd kynnir framboðslista Viðreisnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026
-
Framboðslisti borinn fram til samþykktar viðstaddra félagsmanna.
-
Önnur mál.
Strax á eftir ætlum við að hefja málefnavinnu fyrir sveitastjórnarkosningarnar.
Dagskrá:
-
Kynnumst hvert öðru
-
Málefnavinna í smærri hópum þar sem við tökum málefnin frá síðustu kosningum og uppfærum
-
Almennar umræður um sveitarstjórnarmál í Mosfellsbæ
Allir félagsmenn Viðreisnar í Mosfellsbæ eru velkomnir. Hlökkum til þess að sjá ykkur sem flest.
Stjórn Viðreisnar í Mosfellsbæ