23 nóv Sögustund með Maríu og Ingileif
Laugardaginn 23. nóvember bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á kosningaskrifstofu Viðreisnar að njóta sögustundar úr bókinni Úlfur og Ylfa.
María Rut Kristinsdóttir, oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi, mun lesa upp úr fallegu bókinni sem hún og kona hennar, Ingileif, skrifuðu saman.
Bjóðum öll velkomin að njóta notalegrar samverustundar með okkur á kosningaskrifstofunni.
Hlökkum til að sjá ykkur.