- This event has passed.
Sund og Súpa í Hrísey
30. apríl kl. 16:00 - 20:00

Frambjóðendur Viðreisnar á Akureyri eru á ferð og flugi að ræða við kjósendur!
Fimmtudaginn 30. apríl verðum við í Hrísey. Við ætlum að byrja heimsóknina í sundlauginni en á milli kl 16-18 verður frítt í sund í boði Viðreisnar.
Kl 18 er boðið upp á súpu og brauð í Húsi Hákarla-Jörundar.
Við hlökkum til að hitta þig og ræða hvað liggur þér á hjarta fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Við hvetjum alla Akureyringa, nær og fjær að eiga huggulegan eftirmiðdag í Hrísey, perlu Eyjafjarðar. Einstaklega skemmtilegt tækifæri fyrir fjölskyldufólk að heimsækja eyjuna.
Sjáumst!